Orlando (SFB) - Sanford flugvöllur

Skammstöfun flugvallar: SFB

Orlando Sanford International Airport teygir sig yfir u.þ.b. 2000 hektara og státar af einni bestu farþegaaðstöðu í Bandaríkjunum. Flugvöllurinn er á góðum stað; innan borgarmarka Sanford í norðvesturhluta Seminole-sýslu í Flórída, 18 mílur norðaustur af Orlando. Flugstöðin sjálf er þægileg fyrir ferðamenn og frá henni liggja hraðbrautir á frægar strendur Flórída og til allra ferðamannastaða í Orlando.

Flugvallarupplýsingar

Flugstöð B
Umboðsaðili: Swiss Port
Innritun: 3 klst. fyrir brottför

Heimilisfang

Orlando (SFB) - Sanford flugvöllur
Sanford Airport, 3 Red Cleveland Blvd. Sanford, Florida 32773
Setustofa

Royal Palm Lounge.

http://www.orlandosanfordairport.com/