Berlin-Schönefeld International Airport er alþjóðlegur flugvöllur í Schönefeld, suður af Berlín eða í u.þ.b. 24 km (15 mílna) fjarlægð frá miðborginni. Flugvöllurinn er gjarnan kallaður „fríflugvöllurinn“ („The Holiday Airport“) vegna þess að um hann fer mest alþjóðlegt leiguflug. Alls fara um 4,5 milljón farþegar um völlinn ár hvert eða u.þ.b. 1800 farþegar á klukkustund þegar mest lætur.
Þrjár flugstöðvar eru á Schönefeld-flugvelli, A, B og C. Flugstöðvarnar eru allar samtengdar.
Flugstöð A, fyrsta hæð
Umboðsaðili: Swissport
Innritunartími: 2 klst. fyrir brottför
S-Bahn Airport Express (ofanjarðarlestarkerfi um úthverfin) fer til Berlínar á u.þ.b. 20 mínútna fresti frá Schönefeld-stöðinni. S-Bahn-stöð flugvallarins er í 10 mínútna göngufjarlægð frá flugstöðinni.
Einnig er boðið upp á tíðar sætaferðir með rútum.
Avis, Sixt, Budget, Hertz, Europcar og fleiri bílaleigur eru með útibú á flugvellinum.
Leigubílar eru fyrir utan komusal. Það tekur um 40-50 mínútur að komast inn í miðborg Berlínar.
GlebeGround Hugo-Junkers-Lounge