John F. Kennedy International Airport, sem er í borgarhlutanum Queens, er helsti alþjóðlegi flugvöllurinn í New York og einn þeirra stærstu í heimi. Árið 2004 fóru í kringum 38 milljón farþegar um Kennedy-flugvöll og varð völlurinn þar með einn af þeim flugvöllum í Bandaríkjunum sem hvað örast vaxa.
Bygging flugvallarins hófst árið 1942 og bar völlurinn fyrst nafnið Idlewild-flugvöllur en flugvöllurinn var að hluta til byggður á golfvelli sem hét Idlewild.
Flugstöð 7
Umboðsaðili: British Airways
Innritun: 2 klst. fyrir brottför
British Airways Executive Club Lounge