Stavanger Flugvöllur Sola er staðsettur 14 km frá miðbæ Stavanger. Hátt í 3,2 milljónir manna ferðast um Stavanger flugvöll ár hvert og fljúga þeir til 39 áfangastaða.
Alþjóðleg flugstöð 1
Umboðsaðili: Icelandair
Innritun: 2 klst. fyrir brottför
Það eru 14 km til Stavanger og gengur rútan þangað á 20 mínútna fresti.
Allar helstu bílaleigurnar eru með skrifstofur í komusalnum.
Leigubílar eru alltaf til staðar fyrir framan komusalinn.