Orlando frá 31.080 aðra leið

Orlando býður upp á ótrúlega fjölbreytni. Slakaðu á, njóttu sólarinnar, útsýnisins og endalausrar skemmtunar sem borgin hefur upp á að bjóða. Beint flug er til Orlando til 1. maí 2010 og aftur frá 12. október 2010 til 30. apríl 2011.

Viltu fara með fjölskylduna í fríið? Orlando er frábær kostur.

EKKI BARA SKEMMTIGARÐAR

Með flugi til Orlando kemstu í hjarta Flórída. Það er tilvalið að hefja fríið í Orlando bæði til að slaka á í borginni sjálfri og til að upplifa allt það sem Flórída hefur upp á að bjóða.

Orlando er líklega þekktust fyrir fjölmarga skemmtigarða, sumir þeirra eru meðal þeirra frægustu í heiminum og efst tróna að sjálfsögðu Disney, Universal Studio-garðarnir og Sea World. Einnig má bæta við Wet'n Wild, Silver Springs: Nature's Theme Park og Gatorland.

Þetta er það sem fjölskyldufrí í Flórída snýst um og ef þú hefur einu sinni heimsótt Orlando muntu áreiðanlega fara aftur. Borgin býður upp á óendanlega möguleika. Disney færir þig inn í land ævintýra, kvikmynda og vísinda. Sea World veitir þér óviðjafnanlega innsýn í heim hvalanna neðansjávar. Gatorland og Silver Springs bjóða upp á önnur náttúruundur. Tilvalið er að kæla sig eftir allt fjörið í Wet'n Wild, sem talinn er vera fyrsti alvöru vatnagarðurinn, þar sem finna má spennandi leiktæki, garð fyrir börnin o.fl.

Öfugt við það sem fólk heldur er þó margt fleira að finna í Orlando en skemmtigarða. Þar má helst nefna frábæra veitingastaði eins og Bahama Breeze, 8735 Vineland Avenue, sem hentar sérstaklega vel fyrir fjölskylduna, einnig Outback Steakhouse við Lake Buena Vista og á Kirkman Road í nágrenni Universal Studios. Þeir sem hafa unun af verslunum geta fundið hér eina mestu verslunarparadís sem hugsast getur, og þar ber hæst Florida Mall. Flórída er einnig paradís fyrir golfáhugamenn. Sumir af fremstu golfurum heims búa í Flórída, meðal þeirra er Tiger Woods.

AÐRIR MÖGULEIKAR

Það tekur marga daga að uppgötva allt það sem Orlando hefur að bjóða. Þegar þú ert tilbúinn bíða þín aðrir spennandi möguleikar. Hægt er að leigja bíl og halda suður á bóginn til Miami til að kíkja á næturlífið. Eða aka styttri vegalengdir á strendurnar við Sarasota og Bradenton við Mexíkóflóann. Það er erfitt að finna betri strendur en á strönd Flórída við Mexíkóflóann. Og þegar þangað er komið bakar heit sólin hörundið og hversdagsáhyggjurnar hverfa. Hægt er að láta bát draga sig í fallhlíf (paragliding), bruna á sæþotu, fara á sjóstangaveiðar, froskköfun ... jafnvel ferð í stórmarkaðinn er skemmtileg og uppátækjasöm í þessum heimshluta. Hér má einnig finna einhverja bestu veitingastaði sem völ er á. Hemingways og Tommy Bahamas í Sarasota koma t.d. upp í hugann.

Hér getur þú skoðað alla Mín Borg bæklingana.

  • Flórídabúar eru, eins og allir Bandaríkjamenn, mjög vingjarnlegir, síbrosandi og hjálpsamir.
  • Þegar flogið er til Orlando með Icelandair er lent á Sanford International flugvellinum sem er staðsettur norðaustur af Orlando, í um 29 km fjarlægð. Beint flug er til Orlando til 1. maí 2010 og aftur frá 12. október 2010 til 30 apríl 2011.
  • Upplýsingar um flugáætlun okkar til Orlando næstu 30 daga.
  • Í Orlando eru góðar almenningssamgöngur, en flestir ferðamenn leigja sér bíl.
  • Ef þú ætlar í verslunarmiðstöðina eða í skemmtigarðinn má búast við því að slík ferð taki allan daginn. Flórída krefst töluverðs aksturs.
  • Ítarlegri upplýsingar er að finna í Orlando vegvísinum (á ensku).
  • Vantar þig akstursleiðbeiningar eða upplýsingar um fjarlægðir milli staða?
  • Hér má sjá kort af Orlando með leigustöðvar Hertz merktar inn á.



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share

Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit