Minneapolis hefur verið kölluð "vingjarnlegasta borg Bandaríkjanna". Af hverju ekki að fljúga til Minneapolis og upplifa það sjálf(ur)?
Minneapolishefur einfaldlega allt til að bera, og tilboð okkar á ódýru flugi til Minneapolis gerir hana að afar spennandi áfangastað fyrir fjölskyldufríið. Mall of America, stærsta verslunarmiðstöð Bandaríkjanna, er í Minneapolis. En borgin hefur upp á svo margt annað að bjóða. Frábærir veitingastaðir, óviðjafnanleg söfn og tónlistarlíf sem hefur hrifið tónlistarunnendur í áratugaraðir. Auk þess má bæta við einhverjum bestu aðstæðum til stangveiða og útivistar rétt utan borgarinnar. Minneapolis býður upp á ótrúlega fjölbreytni.
Í Minneapolis sameinast gamalt og nýtt á einstakan hátt. Á öðrum bakka Mississippi stendur Minneapolis, nútímaleg og iðandi af lífi. Hinum megin árinnar er St. Paul, sem ber merki liðinna tíma, þar sem finna má gamlar byggingar og áhugaverðan arkitektúr og frægasta dæmið um það er St. Paul dómkirkjan. Við þetta má bæta fyrsta flokks veitingastöðum eins og Carousel Restaurant, Manny's og Rain Forest Café, ógrynni íþrótta- og menningarviðburða, dýragarði í heimsklassa og ekki færri en 170 útivistarsvæðum og almenningsgörðum og útkoman verður ógleymanlegt fjölskyldufrí.
Hér getur þú skoðaða alla Mín Borg bæklingana.