Frankfurt

Bóka flug til:

Frankfurt

Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Frankfurt er þekkt sem stærsta fjármálamiðstöð í Evrópu, lífleg borg og suðupottur ólíkra menningarbrota, tungumála og lífstíla. Beint flug er til Frankfurt allt árið.

Hjá Icelandair er hægt að velja úr úrvali ferða til Þýskalands. Margir velja flug til Frankfurt og það er auðvelt að sjá ástæðuna fyrir því.

FALLEGT BORGARSTÆÐI

Það er gaman að heimsækja Frankfurt á hvaða tíma árs sem er. Þrátt fyrir að margir kjósi að heimsækja borgina yfir sumarmánuðina er Frankfurt einnig lífleg á veturna og úrvalið af verslunum, veitingastöðum, söfnum og kaffihúsum er endalaust. Það er tilvalið að hefja ferðina í Frankfurt ef ætlunin er að kynna sér Þýskaland, sérstaklega mið- og suðurhluta þess. Ekki gleyma að heimsækja Wiesbaden og Heidelberg, sem eru í nágrenni við Frankfurt. Wiesbaden stendur á bökkum Rínar rétt vestur af Frankfurt, þar úir og grúir af gömlum köstulum og herragörðum, auk blómlegra garða og þekktasta spilavítis í Þýskalandi.

AÐALGATA Í FÖGRU UMHVERFI

Heidelberg er gjörólík Frankfurt. Fornar rústir Heidelbergkastala gæta borgarinnar og allt um kring eru skógi vaxnar hæðir sem skapa einstakt borgarstæði. Í gamla miðbænum, Alstadt, er Hauptstrasse (sem útleggst Aðalstræti), þar sem mikið er af verslunum, kaffihúsum og veitingahúsum; lífleg göngugata í fögru umhverfi. Allt þetta og meira til. Það eina sem þarf að gera er að bóka flug til Þýskalands.

Hér getur þú skoðað alla Mín Borg bæklinagana.

Gott að vita

  • Þegar flogið er til Frankfurt er lent á Frankfurt Main flugvellinum sem er 9 km suðvestur af Frankfurt. Beint flug er til Frankfurt allt árið.
  • Upplýsingar um flugáætlun okkar til Frankfurt næstu 30 daga.
  • Góðar upplýsingar um lestarferðir frá Frankfurt er að finna á vef Deutsche Bahn.
  • Viltu borða? Prófaðu einn af þeim bestu í bænum, Coconut Groove, Kaiserstrasse 53, Frankfurt, matur í anda Kaliforníu og Karíbashafsins. Main Tower Restaurant & Bar, Neue Mainzer-Strasse 52-58, vísað er til sætis á 53. hæð í einum hæsta skýjakljúfi landsins!
  • Viltu versla? Prófaðu Zeil, aðalverslunar- og göngugötuna í miðborginni. Á Goethestrasse má finna bestu merkjavörubúðirnar í Frankfurt. Í Wiesbaden eru allar helstu merkjavörubúðirnar í Kirchgasse, Langgasse, Neugasse og tengdum götum.
  • Upplagt er að heimsækja Europa Park skemmtigarðinn.
Til baka

Þú ert hér: