München

Sagan, hefðirnar, byggingarstíllinn og fólkið gera München að frábærum stað í fríinu. Beint flug er yfir sumartímann.

Flug til München með Icelandair veitir þér tækifæri til að skoða þessa frábæru höfuðborg Bæjaralands.

LEDERHOSEN ... OG MARGT FLEIRA

Bæjarar eru auðvitað Þjóðverjar. En hlutirnir ganga svolítið öðruvísi fyrir sig í Bæjaralandi en annars staðar í Þýskalandi. Fólkið í München klæðist gjarnan "lederhosen", hefðbundnum leðurstuttbuxum, og fjaðrahatti, áhyggjulaust og brosmilt, afslappaðra en hinir alvörugefnu norðanmenn. München er ekki stór borg, en stærð hennar er eins og sniðin að ferðamanninum. Borgin er mjög græn, mikið um opin svæði og garða þar sem gróðurinn blómstrar og er gott skjól á heitum sumardögum. Flug til München hefur upp á margt að bjóða. Í borginni er fjöldi safna, veitingastaða, kaffihúsa og verslunarmiðstöðva. Hún er einnig vel staðsett og tilvalið að skoða svæðið í kring. Hún er rétt norður af Alpafjöllum og ökuferð um fjöllin er ógleymanleg og útsýnið stórkostlegt. Þar eru einnig vinaleg fjallaþorp með eigin veitingastaði og kaffihús og gnótt fagurra staða eins og Schloss Neuschwanstein, sem er einn frægasti og fegursti kastali í heimi, byggður 1868.

Hér getur þú skoðaða alla Mín Borg bæklingana.

  • Eftir flugið til München með Icelandair tekur u.þ.b. 40 mínútur að komast inn í borgina með lest frá München flugvelli. Beint flug er yfir suartímann.
  • Upplýsingar um flugáætlun okkar til München næstu 30 daga.
  • Viltu borða? Það eru margir frábærir veitingastaðir í München sem bjóða upp á staðbundna matargerð, ítalska, kínverska, indverska, allt sem nöfnum tjáir að nefna. Þar má nefna Mövenpick Restaurant, Kunstlerhaus, Lenbachplatz 8.
  • Frekari upplýsingar um München má fá á þessum vefsíðum: www.frommers.com, www.muenchen.de, www.wcities.com
  • Vantar þig akstursleiðbeiningar eða upplýsingar um fjarlægðir milli staða?



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share


Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland