Ferðatímabil 26. maí - 06. september
Berlín hefur verið menningarmiðstöð í Evrópu í 800 ár. Enginn má missa af þessari sögufrægu og líflegu borg sem er síbreytileg.
Þú ættir að íhuga flug til Berlínar, einnar af forvitnilegustu höfuðborgum Evrópu.
Í SKJÓLI MÚRSINS
Berlín er borg mikilla andstæðna. Í byrjun tuttugustu aldar laðaði Berlín til sín leitandi ungt fólk sem heillaðist af menningarlífi borgarinnar. Borgin hefur verið vettvangur frjálslyndis, miðstöð djasstónlistar, lista og skemmtunar. Hún hefur orðið fyrir barðinu á stríði og valdníðslu. Hún var einnig vettvangur einhverra mestu hátíðahalda á 20. öldinni þegar Berlínarmúrinn féll. Berlín gengur sífellt í endurnýjun lífdaga og er þekkt í Evrópu fyrir líflegt tónlistarlíf, söfn og frábæra matargerð. Upplifðu þessa sögulegu, nútímalegu og síbreytilegu borg.
KASTALAR, VÍN OG FJÖLL ...
Þýskaland hefur upp á margt að bjóða og með flugi til Þýskalands er það allt innan seilingar. Hægt er að fara í stuttar dagsferðir frá Berlín og skoða volduga miðaldakastala, frábæra veitingastaði, heillandi fjallaþorp, söfn og verslunarmiðstöðvar. Fljúgðu með okkur til Berlínar og upplifðu þetta og miklu meira.
Gott að vita
Þegar flogið er til Berlínar með Icelandair er lent á Schoenefeld flugvellinum sem staðsettur er 18 km frá Berlín. Lestarferðir eru tíðar eða á um 20 mínútna fresti. Ferð með leigubíl í miðbæinn tekur 40 til 45 mínútur. Beint flug er yfir sumartímann.