Þú ættir að íhuga flug til Berlínar, einnar af forvitnilegustu höfuðborgum Evrópu.
Berlín er borg mikilla andstæðna. Í byrjun tuttugustu aldar laðaði Berlín til sín leitandi ungt fólk sem heillaðist af menningarlífi borgarinnar. Borgin hefur verið vettvangur frjálslyndis, miðstöð djasstónlistar, lista og skemmtunar. Hún hefur orðið fyrir barðinu á stríði og valdníðslu. Hún var einnig vettvangur einhverra mestu hátíðahalda á 20. öldinni þegar Berlínarmúrinn féll. Berlín gengur sífellt í endurnýjun lífdaga og er þekkt í Evrópu fyrir líflegt tónlistarlíf, söfn og frábæra matargerð. Upplifðu þessa sögulegu, nútímalegu og síbreytilegu borg.
Þýskaland hefur upp á margt að bjóða og með flugi til Þýskalands er það allt innan seilingar. Hægt er að fara í stuttar dagsferðir frá Berlín og skoða volduga miðaldakastala, frábæra veitingastaði, heillandi fjallaþorp, söfn og verslunarmiðstöðvar. Fljúgðu með okkur til Berlínar og upplifðu þetta og miklu meira.
Hér getur þú skoðaða alla Mín Borg bæklingana.