Þegar ferðast er til Finnlands og höfuðborgarinnar Helsinki eruð þið tæknilega séð stödd í Skandinavíu. En Helsinki býr yfir heillandi blöndu af austrænum, norrænum og vestrænum einkennum.
Við mælum með að bóka flug til Helsinki og upplifa þetta einstaka land. Landamæri Finnlands liggja að Svíþjóð, Noregi og Rússlandi. Rússnesk áhrif eru áberandi í Helsinki og þótt samskipti þjóðanna tveggja hafi ekki alltaf gengið áfallalaust fyrir sig eru allar væringar gleymdar í dag. Margir Finnar eru skyldari Rússum og baltneskum þjóðum en öðrum Norðurlandabúum. Tungumálið þeirra, sem er alls óskylt öðrum norrænum málum, segir sína sögu. Þótt r-in séu hörð eins og í íslensku, sem gerir það að verkum að fólk ruglast á Finnum og Íslendingum erlendis, nær skyldleikinn ekki lengra. Íslenskan er upprunalegast norrænna mála, en finnskan á sér allt aðra sögu og er af austrænum uppruna.Einstök menning er eitt af því sem gerir Finnland aðlaðandi. Finnland er eitt af fallegustu löndum í heimi og er oft kallað Þúsund vatna landið. Finnar hafa unun af því að leigja sér kofa í skóginum við eitt hinna þúsund vatna og eyða nokkrum dögum í algerri kyrrð, sitja á veröndinni í heitri sólinni, ganga um í skógunum til að kæla sig og veiða silung eða aborra á grillið.
Arkitektúrinn í Helsinki er blanda úr ýmsum áttum, byggingarnar bera jafnt sænskum sem rússneskum áhrifum vitni. Helsinki iðar af lífi á sumrin. Útikaffihús, veitingahús í hæsta gæðaflokki, verslunargötur og áhugaverðir staðir eru allir innan göngufæris í miðborginni. Þarf að segja meira? Er ekki kominn tími til að bóka flug til Helsinki?
Hér getur þú skoðað alla Mín Borg bæklingana.