Flug til Osló í Noregi er upphafið að einstöku og spennandi fríi fyrir fjölskylduna í óviðjafnanlegu landi. Noregur kemur skemmtilega á óvart, svo mikið er víst.
Þótt auðvelt sé að slaka á í Osló á hvaða tíma árs sem er eru vorin og sumrin þegar allt er í blóma sérstaklega indæl. Norðmenn jafnt sem ferðamenn hópast í almenningsgarða og á útikaffihús til að njóta lífsins og sólarinnar. Það er tilvalið að fara í dagsferð og aka norður á bóginn og þræða bláa og nánast endalausa firði, aka um skógivaxnar fjallshlíðar og yfir straumharðar ár, sem flestar eru iðandi af laxi og silungi. Heimsæktu Noreg í hjarta Skandinavíu.
Ættirðu að bóka flug til Osló? Já. Án þess að hika. Fallegur sumardagur í Osló er hrein unun. Sólin er björt. Allskyns kaffi- og veitingahús. Frábær verslunarsvæði, skemmtigarðar og söfn. Það er enn hægt að upplifa náttúruna í Noregi í sinni tærustu mynd. Loft og vatn er eins tær og heiðblár himinninn.
Hér getur þú skoða alla Mín Borg bæklingana.