París

París. Hvort sem þú vilt njóta lista, matar, næturlífs eða fara í dagsferðir út fyrir borgina. Beint flug er til Parísar allt árið.

Flug til Parísar til einnar af ótrúlegustu borgum heims, borgar sem er fræg fyrir sögu sína, rómantík og ástríðu.

EKKI ÖLL ÞAR SEM HÚN ER SÉÐ

París er ekki öll þar sem hún er séð, svona við fyrstu sýn. Hún er auðvitað fræg fyrir Eiffel-turninn, Sigurbogann og iðandi næturlíf á Champs Elyssées þar sem Crazy Horse Saloon er aðalaðdráttaraflið, með villtum kan-kan dönsum og líflegri stemningu. En það forvitnilegasta leynir á sér. Borgin geymir sögu fornra konungdæma, byltinga og valdarána, upp af ösku þeirra risu lýðræðishugmyndir sem teygðu sig um heiminn, m.a. til Norður-Ameríku. Frelsisstyttan í New York er gjöf frá Frökkum til að fagna frelsi þeirra undan hæl Breta. Enn er hægt að finna fyrir þessum liðnu tímum þegar gengið er um götur Parísar. Dæmi um þetta eru Versalahöll í útjaðri Parísar og Loire-dalurinn þar sem finna má einhverjar fegurstu hallir heims, og voru einhverjar þeirra sumardvalarstaðir frönsku hirðarinnar.

Hafirðu einungis nokkra daga til stefnu skaltu einbeita þér að París, en ef þú hefur rýmri tíma ættirðu einnig að skoða sveitina í kring auk annarra franskra borga og áhugaverðra staða. Til dæmis Normandí, þar sem bandamenn gengu á land í seinni heimsstyrjöldinni og lögðu grunninn að endalokum Þriðja ríkisins.

Á EIGIN VEGUM

Ferðamenn í Frakklandi leigja gjarnan bíl og ferðast á eigin vegum, ökuferð um frönsku Alpana er t.d. ógleymanleg. Allir unnendur góðra vína verða að heimsækja vínræktarsvæðin í Búrgúndí og síðast en ekki síst er ómissandi að heimsækja Monte Carlo, Câte d'Azur, og St. Tropez á frönsku rivíerunni. Þú sérð að það er nauðsynlegt að undirbúa sig vel áður en bókað er flug til Frakklands. En það er sama hvar þú ert eða hversu lengi, Frakkland mun vinna hylli þína.

Hér getur þú skoðaða alla Mín Borg bæklinagana.

  • Þegar flogið er til Parísar með Icelandair er lent á Charles de Gaulle-flugvellinum (CDG) sem er 22 km norðaustur af París. Beint flug er til Parísar allt árið.
  • Upplýsingar um flugáætlun okkar til Parísar næstu 30 daga.
  • Laufey Helgadóttir hefur verið fararstjóri okkar í París um árabil. Fólk má hafa samband við hana og fá upplýsingar um hvaða skoðunarferði hún hefur uppá að bjóða. Hægt er að senda henni tölvupóst - laufey@noos.fr
  • Viltu versla? Prófaðu Galeries Lafayette og Le Printemps, Haussmann, helstu verslunarmiðstöðvar Parísar, Rue St. Honoré og Avenue Montaigne, helstu tískumiðstöðvar Parísar, Bensimon Collection, 8, rue des Francs Bourgeois í 3. hverfi. Hlutir til heimilisins, OFR í 10. hverfi.
  • Hvar er best að borða? Prófaðu Cafe de Flore, hugsanlega besta kaffihúsið í París, Brassiere Lipp, alvöru frönsk matargerð, Pathyam, Rue Championnet 222, frábær kínverskur matur, Le Céladon Restaurant, 15 Rue Danou, 5-stjörnu veitingastaður.
  • Ítarlegri upplýsingar er að finna í Parísar vegvísinum (á ensku).
  • Vantar þig akstursleiðbeiningar eða upplýsingar um fjarlægðir milli staða?



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share


Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland