Í huga margra er Spánn staður sólarstranda þar sem fólk sleikir sólina á ströndinni eða á sundlaugarbakka. Hinn raunverulega Spán er hins vegar að finna í stórbrotnum borgum og fagurri sveit. Forn byggingarlist, íberísk og katalónsk menning, einstök matargerð, fótbolti, hið umdeilda nautaat, og að sjálfsögðu ótrúlega mikil sól og gott veður. Nægar ástæður til að bóka flug til Madrídar!
Madrid, höfuðborg Spánar, stendur á miðri kastilísku hásléttunni og eru íbúar þar 3 milljónir. Madrid er heimsborg sem hefur upp á margt að bjóða, fegurð, almenningsgarða og söfn, frábæra veitingastaði og næturlíf, mikið úrval verslana og markaða og framúrskarandi golfvelli fyrir golfáhugamanninn. Hvernig væri að eyða sunnudegi á El Rastro, einum af stærstu flóamörkuðum í Evrópu, eða demba sér í Aquopolis, risastóran vatnaskemmtigarð þar sem hægt er að kæla sig niður á heitum degi.
Þegar kvölda tekur er hægt að velja á milli meira en þrjú þúsund veitingastaða um alla borg. Hugsaðu þér! Að snæða á einum besta veitingastað í Madrid, upplifa nautaat eða heimsókn á Santiago Bernabeu leikvanginn og horfa á Real Madrid gera lítið úr andstæðingum sínum!
Hér getur þú skoðaða alla Mín Borg bæklinagana.