Flug til Manchester á Englandi? Hvers vegna ekki? Þar er að finna sömu blöndu verslana, næturlífs og fótbolta og í London, en stærðin er öllu viðráðanlegri.
Manchester er fyrir norðan London og ef flogið er ódýrt með Icelandair til Manchester er auðvelt að njóta þeirra beggja, þótt Manchester sé alveg nógu stórbiti ein og sér. Verslanirnar? Alveg jafngóðar. Veitingastaðir og næturlífið? Alveg jafngott. Fótboltinn? Það fer eftir því hvaða lið þú styður. Ef maður talar of frjálslega um fótbolta í Englandi er hægt að lenda í vandræðum. Manchester er heimabær eins af stærstu liðunum í fótboltaheiminum, Manchester United. Heimavöllur þeirra er Old Trafford, sem oft er kallaður Draumaleikhúsið (Theater of Dreams) og rúmar 70 þúsund áhorfendur, auk þess sem liðið á milljónir aðdáenda um heim allan. Völlurinn er sannarlega heimsóknarinnar virði.Á svæðinu er að finna fleiri meistaradeildarlið sem einnig laða marga gesti og aðdáendur til Manchester. Auk þess er Liverpool skammt undan og því er önnur frábær borg innan seilingar með ódýru flugi til Manchester.
Liverpool er heimavöllur annars frægs fótboltaliðs. Hún er þó líklega þekktust sem heimaborg Bítlanna, sem einnig eiga sér milljónir aðdáenda um heim allan. Ekki gleyma því að Manchester er heimsborg, líkt og London, þar sem finna má aragrúa fyrsta flokks veitingastaða, fjörugt næturlíf og frábærar verslanir. Hafðu það í huga þegar þú berð fargjöld okkar til Manchester samanvið aðra kosti.
Smelltu hér til að skoða spennandi ferðavísi á íslensku, um veitingastaði, næturlíf, uppákomur og verslanir í Manchester. (PDF)
Hér getur þú skoðað alla Mín Borg bæklingana.