Pétursborg er falleg borg með fjöldi síkja sem liggja um borgina. Hún hefur mikilfenglegt yfirbragð keisaratímans.
Yfirbragð keisaratímans
Pétursborg er falleg borg með fjöldi síkja sem liggja um borgina. Hún hefur mikilfenglegt yfirbragð keisaratímans. Borgin var sett á stofn 1703 af Pétri mikla Rússlandskeisara og í rúm 200 ár var hún höfuðborg landsins. Á þessum tíma höfðu 13 rússneskir keisarar aðsetur sitt og ber því borgin þess áberandi merki í dag. Íburðarmiklar byggingar, söfn, sögulegar minjar og menningarlíf setja sterkan svip á borgina. Í dag eru yfir 100 hallir og 80 söfn í borginni.
Pétursborg er borg mikilfengleika, borg með glæsta fortíð, einskonar minnismerki um liðna tíð, íbúar hennar eru um 4 milljónir. Borgin hefur verið kölluð Feneyjar norðursins vegna margra síkja sem liggja gegnum hana. Það eru liðnar þrjá aldir síðan Pétur mikli byrjaði á því að reisa þessa stórkostlegu borg sem stendur við Finnlands flóa.
Byggingar
Pétursborg hefur einhverjar fallegustu byggingar Evrópu. Í henni má finna íburðarmiklar byggingar, söfn og sögulegar minjar og menningarlíf setja sterkan svip á hana. Rétt fyrir utan borgina er hin glæsilega höll Katrínar keisaraynju, skírð í höfuðið á Katrínu eiginkonu Péturs mikla.
Í Pétursborg er m.a. hægt að kíkja í leikhús, t.d Mariinsky leikhúsið þar sem fá finna þekktasta ballettflokk heims, eða fara í rómantíska kvöldgöngu meðfram einum af mörgum síkjum borgarinnar, skemmtistöðum eða verslunum í þessari fallegu borg í Rússlandi.
Vinsamlegast athugið að vegabréfsáritun þarf til Pétursborgar og þurfa farþegar að verða sér úti um áritunina sjálfir. Sjá nánari upplýsingar hér.
Gott að vita
Icelandair munu fljúga beint til St. Pétursborgar í Rússlandi frá 6. september - 4. október 2006. Flogið verður á miðvikudögum og er brottför frá Keflavík kl. 8:30. Brottför frá St. Pétursborg er kl. 17:20.
Þegar flogið er til Pétursborgar með Icelandair er lent á Pulkovo International flugvellinum sem staðsettur er 17 km frá Pétursborg. Hægt er að taka strætó eða leigubíl frá flugvellinum .
Beint flug St. Pétursborgar tekur um 4 klukkustundir.
Vinsamlegast athugið að vegabréfsáritun þarf til Pétursborgar og þurfa farþegar að verða sér úti um áritunina sjálfir. Sjá nánari upplýsingar hér.