Toronto

Bóka flug til:

Toronto

Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Ferðatímabil 28. mars - 4. nóvember 2012. Viðskiptahöfuðborg Kanada á norðvesturbakka Ontariovatns er iðandi af mannlífi, þróttmikil og áhugaverð þar sem má kynnast fjölmörgum ólíkum þjóðabrotum og menn¬ingarheimum

Flug til Toronto er spennandi kostur. . Toronto er líka tilvalinn upphafsreitur þeirra sem vilja ferðast um landsvæðin kringum „vötnin miklu“ á mörkum Bandaríkjanna og Kanada.

HÆSTA MANNVIRKI Í HEIMI… OG MARGT FLEIRA

Toronto er miðstöð ensk-kanadískrar menningar og fjölmiðlunar en um leið er hún heimaborg ótal þjóðarbrota sem setja sterkan svip á mannlífið og einstök hverfi. Það er hægt að fá sér morgunverð í Ísrael, hádegisverð í Kína, síðdegiskaffi á Ítalíu og kvöldverð í Grikklandi án þess að fara nokkurn tíma út fyrir borgarmörk Toronto. Borgin er einnig þekkt fyrir ýmiss konar hátíðir sem þar eru haldn¬ar frá því í maí fram í október; má nefna t.d. Downtown Jazz Festival og Toronto Bluesfest sem laða til sín gesti hvaðanæva úr heiminum í júní og júlí, og kvikmyndahátíðina, Toronto International Film Festival, í september.

Ýmis áhugaverð söfn eru í Toronto, hið sérstæðasta að líkindum The Bata Shoe Museum þar sem eru 10.000 skópör til sýnis, hin elstu þeirra frá tímum faraóanna í Egyptalandi. Meðfram Ontariovatni er Harbourfront þar sem er margt að skoða og upplifa sér til skemmtunar og að sjálfsögðu kemur enginn til Toronto án þess að fara upp í Canadian National Tower, CN-turninn, sem er hæsta mannvirki í heimi. Toronto státar einnig af frábærum verslunum og fyrsta flokks veitingastöðum þar sem má kynnast hinu besta í matargerðarlist frá öllum heimshornum.

Gott að vita

 

  • Beint flug er til Toronto frá apríl til loka október.
  • Þegar flogið er til Toronto með Icelandair er lent á Pearson International Airport sem er um 27 km norðurvestur af miðborg Toronto.
  • Áhugaverðir tenglar: www.toronto.com, www.torontotourism.com/visitor
  • Gjaldmiðillinn er kanadískur dollar.
  • Viltu versla? Smelltu hér til að skoða helstu verslanir og verslunarmiðstöðvar í Toronto.
Til baka

Þú ert hér: