Viðskiptahöfuðborg Kanada á norðvesturbakka Ontariovatns er nýr áfangastaður Icelandair. Flug til Toronto er spennandi kostur. Borgin er iðandi af mannlífi, þróttmikil og áhugaverð þar sem má kynnast fjölmörgum ólíkum þjóðabrotum og menn¬ingarheimum. Toronto er líka tilvalinn upphafsreitur þeirra sem vilja ferðast um landsvæðin kringum „vötnin miklu“ á mörkum Bandaríkjanna og Kanada.
Toronto er miðstöð ensk-kanadískrar menningar og fjölmiðlunar en um leið er hún heimaborg ótal þjóðarbrota sem setja sterkan svip á mannlífið og einstök hverfi. Það er hægt að fá sér morgunverð í Ísrael, hádegisverð í Kína, síðdegiskaffi á Ítalíu og kvöldverð í Grikklandi án þess að fara nokkurn tíma út fyrir borgarmörk Toronto. Borgin er einnig þekkt fyrir ýmiss konar hátíðir sem þar eru haldn¬ar frá því í maí fram í október; má nefna t.d. Downtown Jazz Festival og Toronto Bluesfest sem laða til sín gesti hvaðanæva úr heiminum í júní og júlí, og kvikmyndahátíðina, Toronto International Film Festival, í september.
Ýmis áhugaverð söfn eru í Toronto, hið sérstæðasta að líkindum The Bata Shoe Museum þar sem eru 10.000 skópör til sýnis, hin elstu þeirra frá tímum faraóanna í Egyptalandi. Meðfram Ontariovatni er Harbourfront þar sem er margt að skoða og upplifa sér til skemmtunar og að sjálfsögðu kemur enginn til Toronto án þess að fara upp í Canadian National Tower, CN-turninn, sem er hæsta mannvirki í heimi. Toronto státar einnig af frábærum verslunum og fyrsta flokks veitingastöðum þar sem má kynnast hinu besta í matargerðarlist frá öllum heimshornum.
Hér getur þú skoðað alla Mín Borg Bæklingana.