Düsseldorf frá 21.700 aðra leið

Fljúgðu með Icelandair til Düsseldorf við Rínarfljót. Düsseldorf er höfuðborg Norður-Rín-Vestfalíu og hefur um aldaraðir verið áberandi á sviði viðskipta, fjarskipta og lista og einnig tísku og auglýsinga. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Düsseldorf yfir sumartímann.

Borg menningar og viðskipta



Düsseldorf er borg þar sem arkitektúr er áberandi og framsækinn. Staða borgarinnar í viðskiptum, tísku og listum er kannski ástæðan fyrir lifandi og skemmtilegu næturlífi borgarinnar sem jafnast á við fjör næturlífsins í stærri borgum. Þar er gamli bærinn, Altstadt, í aðalhlutverki en þar getur fólk þrætt barina. Gamli bærinn hefur þó fengið öflugan keppinaut sem er Medienhafen sem er nýtt hafnarsvæði í Düsseldorf. Á daginn gefur þar að líta framsækinn arkitektúr arkitekta á borð við Frank Gehry en þegar kvölda tekur við hressandi næturlífið. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Düsseldorf yfir sumartímann.

Fyrir áhugafólk um menningu þá er Düsseldorf frábær áfangastaður. Skáldjöfurinn Heinrich Heine er heiðraður í Düsseldorf og er meðal annars hægt að heimsækja húsið þar sem hann fæddist. Hallir og söfn eru áberandi og meðal safna má nefna Goethe safnið, Heinrich Heine stofnunina, K20 og K21 söfnin, Museum Kunst Palats þar sem gefur meðal annars að líta Venus og Adonis eftir Ruben og síðast en ekki síst má nefna áhrifamikið safn um þriðja ríkið og ofsóknir þess.

Fyrir ljúffengan kvöldverð á einhverjum af frábærum veitingastöðum er góð hugmynd að fá sér göngutúr um Hofgarten og virða fyrir sér garðinn með öllum sínum styttum, þar á meðal af Heine, Robert Schumann og fleiri stórmennum þýskrar sögu.

Hér getur þú skoðaða alla Mín Borg bæklingana.




Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share

Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit