Stavanger frá 17.800 aðra leið

Stavanger er fjórða stærsta borg Noregs. Oft er hún nefnd „olíuhöfuðborg Noregs“ en það er villandi því Stavanger er miklu meira. Stavanger er falleg borg sem situr við höfnina og teygir sig upp í landið með þröngum hellulögðum götum milli hvítra húsa. Beint flug til Stavanger er yfir sumartímann.

Falleg og lifandi

 

Stavanger er fjórða stærsta borg Noregs. Oft er hún nefnd „olíuhöfuðborg Noregs“ en það er villandi því Stavanger er miklu meira. Stavanger er falleg borg sem situr við höfnina og teygir sig upp í landið með þröngum hellulögðum götum milli hvítra húsa. Fegurð Stavanger og svæðisins í kring, veitingastaðir, söfn og mannlíf vinna í sameiningu að því að gera Stavanger að eftirlætisborg þeirra sem heimsækja Noreg.

Fjölmörg söfn eru í Stavanger þar sem list og sögu eru gerð góð skil. Veitingastaðir leggja auðvitað mikla áherslu á fisk eins og til dæmis á Sjøhuset Skagen þar sem ofnbakaður lax er helsti rétturinn. Næturlífið er líka til fyrirmyndar. Þar er hægt að rölta á milli bara og blanda geði við gestrisna Norðmenn og dansa sér til óbóta. Um morguninn ríkir kyrrðin í Stavanger eins og ekkert hafi gerst og engin dansspor stigin.


Flug til Stavanger  

Hér getur þú skoðaða alla Mín BOrg bæklingana.



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share

Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit