Seattle (íb. um 600.000 í borginni sjálfri og tæpar 3,3 miljónir á borgarsvæðinu öllu) er kraftmikill en hlýlegur staður þar sem miðbærinn iðar af lífi og ferðamönnum býðst að njóta hverrar stundar á þann hátt sem við er að búast í nútímaborg.
Þar má sjá mörg dæmi um glæsilega uppbyggingu á liðnum árum, byggingar og söfn eins og Experience Music Project, Seattle Art Museum og Olympic Schulpture Park. Helsta kennileiti borgarinnar eru þó sem áður Geimnálin eða Space Needle sem var reist fyrir heimssýninguna árið 1962. Efst þar uppi er glæsilegasta útsýni sem völ er á í Seattle, Olympic Mountains í vestri, hinum megin við Pugetsund, Cascade Range í austri og við himin í suðaustri gnæfir Mountain Rainier, ógleymanleg sjón á heiðskírum og björtum degi.
Seattle er þó frægust fyrir nábýli sitt og íbúanna við hafið og við stórbrotna náttúru sem er innan seilingar. Vötn, firðir, víkur, vogar og lokkandi eyjar setja mark sitt á borgarstæðið og eru í reynd hluti af mannlífinu í Seattle þar sem ferðamönnum bjóðast ótal tækifæri til skoðunarsiglinga, hvort sem er meðfram borginni sjálfri eða út í nærliggjandi eyjar. Í austri rísa svo fjöllin þar sem önnur og hrikafögur veröld opnast ferðamönnum með ótal möguleikum til útivistar, t.d. gönguferða og tjaldútilegu á sumrin og skíðaferða á veturna.
Frá Seattle er stutt að fara bíl norður til Vancouver í Kanada og eins er tilvalið að bregða sér suður til Portland í Oregon sem kölluð hefur verið „grænasta borgin“ í Bandaríkjunum. Fyrir þá sem langar til að aka um vesturströnd Bandaríkjanna er svo tilvalið að fljúga til Seattle og taka stefnuna þaðan suður til San Fransisco og jafnvel allt suður til Los Angeles.
Hér getur þú skoðað alla Mín Borg Bæklingana.