Í samvinnu við Alaska Airlines bjóðum við tengiflug frá Seattle til Anchorage í Alaska þar sem býðst einstök upplifun fyrir náttúruunn endur og útvistarfólk sem vill reyna eitthvað nýtt.
Anchorage er stærsta borgin í Alaska með um 300.000 íbúa en í borginni og nágrannbæjum hennar eiga heima um 40% allra Alaskabúa. Anchor age er mikilvæg hafnarborg og miðstöð vörufutninga og þar slær hjarta viðskiptalífsins í Alaska. Anchorage var sett á stofn árið 1914 og var þá ekki annað og meira en vinnubúðir fyrir þá sem unnu að lagningu Alaska-járnbrautarinnar.
Árið 1964 varð geigvænlegt tjón í Anchorage vegna jarðskjálfta á föstudaginn langa en smám saman byggðist borgin upp að nýju og fór að blómstra með olíuævintýrinu þegar byrjað var að dæla olíu frá Prudhoe Bay. Þar er nú höfuðstöðvar olíuiðnaðar í Alaska.
Flug til Anchorage er einstakt tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að kynnast stór brotinni náttúrufegurð í suðvesturhluta Alaska og einstöku dýralífi á heillandi norðuslóðum við Kyrrahaf.
Hvassbrýndir tindar og glitrandi jöklar setja svip sinn á suðvesturströnd Alaska og í boði frá Anchorage eru ferðir á sjó og landi til að sjá þessar náttúruperlur með eigin augum. Frá Anchorage er einnig stutt að fara að heimsækja tvo kunna þjóðgarða, Chugach State Park, þriðja stærsta þjóðagarðinn í Alaska, og Denali National Park & Preserve sem er kringum hæsta fjall í Norður-Ameríku, Mount McKinley (6.1993 m).
Borgin liggur norðarlega og besti tíminn til að heimsækja hana er frá maí fram í september þegar sumardagarnir eru langir og næturnar stuttar eins og hér heima á Íslandi. Hiti á sumrinn nær oft 23 til 24 stigum en á veturna getur frostið einstaka sinnum farið niður í 30 stig.