Vancouver

Vancouver er „steinsnar“ frá Seattle, hafnar-, iðnaðar- og menningarborg í suðvesturhorninu á Bresku Kólumbíu, gegnt Vancouver Island.

Njóttu hins besta í glæsilegri stórborg í nábýli við ægifagurt landslag og glitrandi haf. Taktu tengiflug með Alaska Airlines í samvinnu við Icelandair frá Seattle til Vancouver í Kanada.

Borgin sem ber af

Vancouver er „steinsnar“ frá Seattle, gegnt Vancouver Island í suðvestur¬horninu á Bresku Kólumbíu. Hún er kraftmikil hafnar- og iðnaðarborg og miðstöð viðskipta- og menningarlífs, borg sem býr yfir sínum eigin töfrum, skartar fallegum byggingum og fjölbreytilegu mannlífi.

Íbúarnir eiga sér ólíkan uppruna og eru af ýmsu þjóðerni og sem dæmi má nefna að í Vancouver er annað fjölmennasta Kínahverfið í Norður-Ameríku. Vancouver á sér ekki langa sögu, fyrstu hvítu landnemarnir settust hér að árið 1875, en hún hefur síðan laðað til sín aragrúa fólks og nú búa 2,3 miljónir manna í Vancouver og á Vancouversvæðinu.

Vancouver hefur það orð á sér að þar sé gott að koma og enn betra að eiga heim. Ferðatímaritið Condé Nast útnefndi Vancouver „bestu borgina í Ameríku“ þrjú ár í röð, 2004 til 2006, og nefndi þá sérstaklega þægilegt andrúmsloft í borginni, vingjarnlega íbúa, blómlegt menningarlíf og áhugaverða ferða-mannastaði og góða veitingastaði, hótel og verslanir.

Vetrarólympíuleikar 2010

Að baki Vancouver rísa tindar Norðurstrandarfjalla (North Shore Mountains), snævi þaktir á vetrum, og þéttur, stórvaxinn skógur teygir sig ofan hlíðarnar niður að fallegri ströndinni. Í grennd við borgina og uppi í fjöllunum og í djúpum dölum á milli þeirra eru heillandi útivistarsvæði og stórbrotið landslag sem dregur til sín aragrúa náttúruunnenda og skíðamanna á hverju ári.

Dagana 12. til 28. febrúar í vetur (2010) verður svo mikið um að vera því að XXI. Vetrarólympíuleikarnir verða þá haldnir í Vancouver og í skíðabænum Whistler. Afreksmenn í vetraríþróttum streyma þá hvaðanæva að til Vancouver og væri tilvalið að slást í hóp með þeim.

Veður er milt í Vancouver allt árið. Sumarhitinn er að jafnaði tæp 30 stig og á veturna frá frostmarki upp í 5 stig. Á veturna getur verið rigningasamt í Vancouver og snjóar þá í fjöllunum til ómældrar ánægju fyrir skíðamenn.

  • Flugvöllur Vancouver International Airport (YVR) er 13 km suður af miðborg Vancouver. Rútur, leigubílar og lestir ganga á milli flugvallarins og miðborgarinnar.
  • Viltu borða? Í borginni eru hundruð veitingastaða og má fá mat frá öllum heimshornum. Af kunnum stöðum nefna t.d.  Blue Water Cafe, Villa del Lupo, RainCity Grill, Chambar Belgian Restaurant, Le Bistro Chez Michel, Simply Thai, Glowbal Restaurant og Provence Marinaside.
  • Viltu versla? Aðalverslunargötur í miðborginni eru Robson Street og götur út frá henni. Stór vöruhús við Robson Street eru The Bay (Hudson Bay Company), Holt Renfrew og Pacific Centre Mall. 
  • Góðir tenglar www.discovervancouver.com



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share


Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland