Í Þrándheimi (Trondheim), þróttmikilli borg (180.000 íb.) við Niðarós í Þrándheimsfirði, er miðstöð fyrir verslun og viðskipti um miðbik Noregs. Borgin er einnig nefnd stundum „höfuðborg tækni og nýsköpunar“ í Noregi því að þar er víðkunnur tækni- og vísindaháskóli, Norges teknisk-naturviten¬skapelige universitet, og háskólastúdentar og raunvísindamenn setja sinn svip á bæjarbraginn. Þrándheimur er vinsæll áfangastaður ferðamanna því að borgin er hlýleg, menningarlífið blómstrar og margt að sjá og skoða. Allt í kring eru svo heillandi sveitabyggðir, fjöll og dalir sem bjóða nær óteljandi tækifæri til náttúruskoð¬unar og útivistar allan ársins hring.
Söguslóðir, gamall sjarmi, stórbrotið landslag
Ólafur Tryggvason setti Þrándheim á stofn árið 997. Staðurinn nefndist þá og allengi síðan Niðarós. Þar var lengi konungssetur og erkibiskupsstóll, sem komu mjög við sögu okkar Íslendinga, og í Þrándheimi var Ólafur Haraldsson inn helgi lagður til hinstu hvílu eftir Stiklarstaðaorustu. Á gröf hans var byrjað að reisa dómkirkju árið 1067 (Kristskirkja) og enn gnæfir Dómkirkjan í Niðarósi yfir gamla bænum í Þrándheimi og hana verða allir að skoða. Við mælum einnig með gönguferð um Bakklandet, gamalt bæjarhverfi á austurbakkanum á Nið, gegnt miðbænum, þar sem standa hlýleg timburhús við þröngar götur og er mikið um veitingastaði, sérversl¬anir og gallerí. – Frá Þrándheimi er svo tilvalið að bregða sér í dagsferðir eða lengri ferður um nærliggj¬andi slóðir, um strandhéruðin og firðina eða út í eyjar eins og Hítru og Froya. Fyrir stangveiðimenn er aðeins um klukku¬stundarakstur frá Þrándheimi að sex kunnum laxveiðiám, Nið, Gaul, Ork, Stjóradalsá, Stordalselva og Norddalselva. Fyrir sunnan Þrándheim eru fjallaklasarnir Trollheimen og Dofrafjöll og þar eru vinsælir skíðastaðir, þeirra þekktastur og vinsælastur í Oppdal í Dofrafjöllum.