Brussels

Hafðu það gott og njóttu lífsins lystisemda með því að taka flugið með Icelandair til Brussel. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Brussel yfir sumartímann.

Hafðu það gott og njóttu lífsins lystisemda með því að taka flugið með Icelandair til Brussel.

Hefðarrík, heillandi og ný


Brussel er borg sem tengist daglegu lífi fjölmargra Evrópubúa því að þar eru höfuðstöðvar Evrópusambandsins og NATO og teknar afdrifaríkar ákvarðanir. En Brussel er þó framar öllu höfuðborg Belga og á sér langa og merkilega sögu, nær jafngamla og við Íslendingar. Aldagamlar hefðir og byggingar setja svip sinn á gamla bæjarkjarnann þar sem er Miklatorg, Grand-Place, hjarta borgarinnar, markaðs- og ráðhús¬torgið með byggingum frá liðnum öldum í gotneskum, endurreisnar- og barokkstíl. Í Brussels gefst tæki¬færi til að komast í snertingu við allt hið besta í evrópskri menningu í fylgd með vingjarnlegum og brosmildum Belgum.

Andleg og efnisleg verðmæti og ilmur af súkkulaði
Enginn hefur verið í Brussel án þess að láta freistast til að fá sér hið fræga belgíska konfekt (pralines) og gleðja munn og maga á frábærum veitinga¬stöðum í borginni, svo ekki sé minnst á kollu af freyðandi, belgísku öli. En í borginni er líka margt einstakt að sjá og skoða. Allir láta taka mynd af sér hjá Manne¬ken Pis, tákni borgarinnar, smástytt¬unni frægu af stráknum sem er að pissa í gosbrunn við Rue de l’Etuve, skammt frá Miklatorgi. Þaðan er svo stutt að ganga í heillandi, gömul borgarherfi, L’Ilot Sacré og Le Sablon. Notre Dame de Sablon er stórfengleg gotnesk kirkja frá 15. og 16. öld og í Musée d’Art Ancien má sjá m.a. verk eftir Rubens, van de Weyden, Breughel og Bosch. Meðan dvalist er Brussel er svo tilvalið að skreppa til heillandi borga í nágrenninu þar sem má mæla sérstaklega með heimsóknum til Antwerpen, Ghent og Brügge.

  • Flugvöllur Alþjóðlegi flugvöllurinn í Brussel (BRU) (Brussels Nationaal/ Brussels-National) er í  Zaventem, 11 km norðaustur af borginni. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Brussel yfir sumartímann.
  • Viltu borða? Í Brussel eru ókjörin öll af veitingastöðum, staðir sem bjóða gestum sínum „haute cuisine“, kjarngóðan belgískan mat og mat frá öllum heimshornum. Bestu veitingahúsin í Brussel þykja jafnast á við bestu veit¬ingahús í París og verði er þá á svipuðum nótum. En eitt af því sem gerir heimsókn til Brussel svo eftirsóknarverða er að í borginni er að finna ókjörin öll af góðum veitingastöðum þar sem verðið er mjög hagstætt.
  • Viltu versla? Helsta verslunargatan í miðborg Brussel er Rue Neuve (Nieuwstraat) þar sem eru m.a. stór vöruhús. Fínar merkjavöruverslanir og fornmunaverslanir eru einkum í Sablon-hverfinu, milli Porte Louise og Porte de Namur og við Avenue Louise. Lítið endilega inn í sérverslanir með belgískar smákökur, belgískt konfekt, blúndur og kniplinga.
  • Góðir tenglar: www.brussels.org, www.visitbelgium.com



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share


Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland