Portland

Bóka flug til:

Portland

Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Portland, "rósaborgin", er fjölmennasta borgin í Oregon og þriðja fjölmennasta borgin á norðvestanverðri Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku, næst á eftir Seattle og Vancouver.


Taktu flugið til Portland, borgarperlu í Oregon, með Alaska Airlines í tengiflugi frá Seattle í samvinnu við Icelandair.

Falleg, græn, umhverfisvæn og mannelsk
Portland stendur á bökkum Willamette-ár, skammt þaðan sem hún rennur saman við Columbia-fljót sem skilur á milli ríkjanna Oregon og Washington. Í Portland búa um 600.000 manns og hún þykir ein af þeim borgum í Bandaríkjunum þar sem best er að eiga heima. Borign er víðkunn fyrir stóra garða og náttúrurverndarsvæði innan borgarmarkanna, fyrirmyndarstefnu í umhverfismálum, sem á sér meira en 100 ára sögu, rósarækt, bjórbruggun, kaffimenningu og einstakt borgarsambýli manns og náttúru.

Portland hefur lengi verið ein helsta hveitiútflutningshöfn í norðvestanverðum Bandaríkjunum en á síðustu áratugum hefur borgin laðað til sín hátæknifyrirtæki tölvualdar; er stundum kölluð „the silicon forest“. Mannlíf í Portland er fjölbreytt og kraftmikið, hlýlegt og frjálslegt, og séð til þess að allir, sem heimsækja borgina, fái að njóta dvalarinnar hver eftir sínu höfði.

Njótið garðanna, listanna, ölsopans og náttúrunnar
Í Washington Park má skoða Portland Japanese Garden og hinn víðkunna International Rose Test Garden. Listalífið er fjölbreytt, hvort sem er verið að hugsa um  klassík, djass, dægurtónlist eða leikhús, og tilvalið líka að bregða sér á „bíó með bjór“ í einu af hinum sérstæðu „brew and view“ kvikmyndahúsum í Portland.

The Portland Art Museum er stórt og áhugavert listasafn og listagallerí eru fjölmörg í Pearl District og víðar. Skemmtilegt vísindasafn, OMSI, er í borginni og þar má m.a. sjá kafbátinn sem notaður var í kvikmyndinni „The Hunt for Red October“. Áhugafólk um bjór og ölgerð heimsækir svo eitt af hinum tæplega 30 ölgerðarhúsum í Portland sem stundum er kölluð „bjórborgin“, „Beertown“.

Frá Portland er tilvalið að bregða sér í lengri eða styttri ferðir um nærliggjandi héruð, Columbia County, Mt. Hood Territory eða Washington County. Þar má njóta náttúrufegurðar, notalegra sveitaþorpa, stunda útivist, fjallgöngur og golf svo eitthvað sé nefnt. Möguleikarnir eru ótæmandi.

Gott að vita

  • Flugvöllur Portland International Airport (PDX) er við Columbia-fljót, tæpa 15 km fyrir utan miðbæ Portland. Þægilegast og ódýrast er að taka MAX léttlestina frá flugvellinum til borgarinnar. Almenningssamgöngur í Portland eru fyrsta flokks.
  • Viltu borða? Á síðustu árum hefur farið mjög gott orð af veitingahúsum og matarmenningu í Portland og matgæðingum þykir borgin með hinum betri í Bandaríkjunum að þessu leyti. Hún þykir einnig frábær fyrir þá sem vilja grænmetisfæði. Einnig er vert að benda á að í Portland eru mörg frábær kaffihús og „kaffimenning“ þykir þar á háu stigi.
  • Viltu versla? Helstu verslunarsvæðin í Portland eru Downtown Portland, Nob Hill, Pearl District og Lloyd District. Í miðbænum eru vöruhús eins og Nordstrom, Macy's, Saks 5th Avenue og Mario's. Á laugardögum fram til jóla er svo freistandi að líta á Portland Saturday Market.
  • Góðir tenglar www.travelportland.com
Til baka

Þú ert hér: