Alicante

Bóka flug til:

Alicante

Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Ferðatímabil 28. mars - 24. október Alicante á suðausturströnd Spánar, á Costa Blanca, er kjörinn áfangastaður fyrir þá sem kunna að meta notalegt strandlíf, spænska menningu og iðandi fjör.

Taktu flugið til Alicante með Icelandair. Flogið verður vikulega til þessa sívinsæla sólarstaðar við Miðjarðarhaf frá lok mars og fram í október 2012.

Sólarstrendur og dekurlíf


Alicante er paradís þeirra sem elska að vera í sól, láta sér líða vel á volgri og mjúkri sandströnd, kæla sig í blátærum öldum, snæða ljúffengan mat í hlýju kvöldrökkri og njóta þess að vera til undir suðrænum næturhimni. Þarna má finna allt sem hugurinn girnist og sóldýrkendur sækjast eftir, úrvalshótel og íbúðahótel, frábæra veitingastaði og magnað næturlíf.


Hjá Alicante eru margar baðstrendur en kunnust þeirra allar er San Juan ströndin, Playa de San Juan, um 10 km norður af borginni, 7 km af fínkorna gulum sandi, hrein og freistandi. Fyrir ofan ströndina raða sér veitingastaðir, hótel, verslanir og tómstundagarðar, þeirra á meðal golfvöllur, og kvöldskemmtun á San Juan þykir taka öllu fram í Alicantehéraðinu. „El Postiguet“ er önnur vinsæl strönd í borginni sjálfri, niður undan líflegri strandgötu, dunandi samkomustað borgarbúa og ferðamanna frá morgni til kvölds.

Spánarmenning, saga og borgarys


Alcante á sér aldalanga sögu, er æfaforn hafnarborg, miðstöð viðskiptalífs og menningar og mennta á þessum slóðum. Auðkennistákn borgarinnar er kastalinn, Catillo de Santa Barabara, uppi á Benacantilhæðinni þaðan sem er frábært útsýni. Skoðið Santa María kirkjuna. Röltið um garða eins og El Palmeral garðinn og El Ereta garðinn eða undir pálmatrjánum við Explanada de España.


Við mælum einnig með heimsókn á fornleifasafnið, Museo Arquelógico Provincial, sem þykir eitt af áhugaverðustu söfnum af þessu tagi á Spáni og bregður upp myndum frá um 100.000 ára sögu mannvistar á þessum slóðum. Collecio Capa er stærsta safn nútímaskúlptúra á Spáni og er að finna hjá og innan um byggingar og garða Santa Barabara kastalans. Gott safn nútímalistar er í La Asegurada.


Af styttri ferðum frá Alicante má benda á siglingu til Tabarca-eyjar sem áður var illræmt sjóræningjabæli en er nú fjölsóttur ferðamannastaður. Þá er skemmtilegt að bregða sér til Busot, 24 km fyrir utan Alicante, til að skoða hellana í Canelobre, Cuevas del Canelobre, þar sem eru hæstu hellahvelfingar á Spáni.

Gott að vita

  • Flugvöllurinn í Alicante, L'Altet (ALC), er 11 km suður af miðbæ Alicante. Flugvallarrútur ganga reglulega til borgarinnar og annarra sólarbæja í grenndinni og nóg er af leigubílum.
  • Viltu borða? Af nógu er að taka þegar kemur að því að fá sér að borða í Alicante. Ókjörin öll af veitingastöðum bjóða gestkomandi mat frá öllum heimshornum og í öllum verðflokkum. Spænsk matreiðsla er að sjálfsögðu í hávegum höfð og í Alicante er mikið af sjávarréttastöðum þar sem eru í boði ljúffengar paellur.
  • Viltu versla? Stóra spænska vöruhúsakeðjan, El Corte Inglés, er með aðsetur við av Maisonnave. Aðalverslunargöturnar í Alicante eru Rambla de Méndez Núñes og áðurnefnd Avenida Maisonnave og nærliggjandi götur. Í El Barrio, gamla bænum, er mikið af smáverslunum af öllu tagi, t.d. við Calle Mayor. Nærri höfninni er mollið Panoramis. Sleppið ekki að líta við á Aðalmarkaðnum við Avenida Alfonso el Sabio sem er opinn mánudaga til föstudaga kl. 7:00 – 14.30 og á laugardögum kl. 7:30 – 15:00.
  • Góðir tenglar www.alicante-city-insiders-guide.com
Til baka

Þú ert hér: