Halifax frá 26.800 aðra leið

Halifax er hlýleg borg og ótal tækifæri til útivistar, aðlaðandi smábæir og þorp, vingjarnlegt fólk sem er boðið og búið til að liðsinna gestkomandi. Beint flug er yfir sumartímann.

Góðir vinir og bjartar minningar

Halifax er kjörinn staður fyrir þá sem vilja hafa það gott, skipta um gír og slaka á. Hérna eru fyrst flokks gististaðir, frábærir veitingastaðir, smitandi fjör á kránum í miðbænum, gott mannlíf, litrík menningarhefð, góðar verslanir og hagstætt verðlag. Þar að auki er Halifax hlýleg og falleg borg og í næsta nágrenni við hana má heimsækja aðlaðandi smábæi og þorp við ströndina. Þá er tilvalið að taka bílaleigubíl og bregða sér í ökuferðir um Nova Scotia.

Hér getur þú skoðað alla Mín Borg bæklingana


  • Þegar flogið er til Halifax með Icelandair er lent á Halifax International Airport sem er um 35 km norður af miðbæ Halifax, eða um 30 – 40 mínútna akstur. Beint flug er yfir sumartímann.
  • Áhugaverðir tenglar: novascotia.com, halifaxinfo.com
  • Upplýsingar um flugáætlun okkar til Halifax næstu 30 daga.
  • Gjaldmiðillinn er kanadískur dollar.
  • TaxFree, 15% söluskattur (HST) leggst á nær allan varning í Nova Scotia. Frá og með 1. apríl 2007 fæst þessi skattur ekki endurgreiddur.
  • Viltu versla? Kíkið á Spring Garden Road, Barrington Street, Granville Street og Argyle Street. Halifax Shopping Center við Mumford Road, Park Lane Shopping Centre við Spring Lane Road, Scotia Square við Duke Street og Mic Mac Mall við Micmac Boulevard í Dartmouth.
  • Vantar þig akstursleiðbeiningar eða upplýsingar um fjarlægðir milli staða?



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:
Bookmark and Share

Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit