Innritun

Við innritun borgar sig að hafa tiltæk öll nauðsynleg skjöl. Allar nánari upplýsingar hvað það varðar er að finna hér.

Fáðu upplýsingar um hvenær æskilegt er að mæta til innritunar hér.

Farþegar með E-miða þurfa að hafa útprentað eintak af staðfestingarpósti og vegabréf.

Forðist alla farsímanotkun þegar röðin er komin að ykkur við hefðbundna innritun. Auðveldið okkur að leysa innritunina eins fljótt af hendi og kostur er.

Icelandair hefur tekið í notkun sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir innritun í brottfararsal á Keflavíkurflugvelli. Farþegar geta nú valið um að innrita sig sjálfir á innan við einni mínútu og valið sitt eigið sæti eða fengið hefðbundna þjónustu við innritun.

Þetta eru svokallaðar "single airline" afgreiðslustöðvar, sem þýðir að eingöngu viðskiptavinir Icelandair munu geta innritað sig í flug með þessum hætti. Icelandair er því eina flugfélagið sem býður upp á þessa þjónustu á Keflavíkurflugvelli.

Þegar farþegi hefur innritað sig sjálfur í flug, tekur starfsmaður viðkomandi flugfélags við farangri hans á sérstakri hraðleið ("Fast Bag Drop-off"). Þeir sem engan farangur hafa geta haldið beint upp á brottfararsvæðið á 2. hæð flugstöðvarinnar.

Smellið hér til skoða leiðbeiningar um hraðinnritun.

Vinsamlega athugið.

  • Að hámarki sex farþegar geta ferðast saman (bókað saman) svo hægt sé að nýta sjálfvirka innritun.
  • Farþegar með tengiflug með SAS geta notað sjálfsafgreiðslustöðvar og innritað sig alla leið.
  • Farþegar til USA geta ekki nýtt sér sjálfsafgreiðslustöðvar vegna öryggiskrafna bandarískra stjórnvalda.

Innritun á netinu


Icelandair býður nú Netinnritun til að bæta þjónustu og auka þægindi viðskiptavina sinna.

Með Netinnritun getur þú innritað þig óháð stað og stund (36 klst. fyrir brottför) - valið sæti, prentað út þitt eigið brottfararspjald og þar með sparað tíma og biðraðir við hefðbundna innritun.

 Netinnritun



Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland