Saga Class:
Heimilt er hverjum farþega á Saga Class farrými:
- Tvær töskur sem hvor um sig vegur að hámarki 9 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hvorrar tösku má ekki vera meira en 115 cm.
Economy Comfort:
Heimilt er hverjum farþega á Economy Comfort farrými:
- Tvær töskur sem hvor um sig vegur að hámarki 9 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hvorrar tösku má ekki vera meira en 115 cm.
Á almennu farrými:
Heimilt er hverjum farþega á almennu farrými:
- Ein taska sem vegur að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meira en 115 cm.
Aðrir aukahlutir án endurgjalds
Í millilandaflugi má hafa eftirfarandi hluti með sér um borð sem handfarangur, án endurgjalds:
- 1 frakka eða yfirhöfn
- 1 handtösku
- 1 regnhlíf eða staf
- 1 litla myndavél
- 1 kíki
- hæfilegt magn af lesefni
- barnamat fyrir ferðina
- barnaburðarrúm
Hertar reglur um hvað má ferðast með í handfarangri.
Vökva má ferðast með í handfarangri að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
- Hver eining umbúða má að hámarki rúma 100 millilítra (1dl) af vökva.
- Allar umbúðirnar verða að rúmast í gegnsæjum eins (1) lítra plastpoka sem hægt er að loka með plastrennilás.
- Hverjum farþega er heimilt að hafa með sér einn poka.
- Með umbúðum er átt við flöskur, túpur, hylki og annað sem getur innihaldið vökva.
- Gosflöskur og dósir eru flestar stærri en 100 ml (1dl) og eru því ekki leyfðar inn fyrir öryggishlið.
Farþegar mega hafa meðferðis aðrar nauðsynjar til persónulegra nota meðan á flugi stendur ef öryggisverðir telja ekki ógn stafa af þeim:
- Lyfseðilsskyld lyf merkt notanda a) í töfluformi eins mikið og þarf b) 100 ml. í fljótandi formi
- Barnamat
- Matvæli vegna sérstaks mataræðis
Farþegi gæti þurft að færa sönnur á innihald óski öryggisverðir eftir því.
Hér eru frekari upplýsingar um hertar öryggisreglur. (PDF)
Hvað er vökvi?
Allur vökvi, gel, mauk, krem, smyrsl, úðaefni, o.s.frv. hvort sem er í flöskum, þrýstibrúsum, túpum eða öðrum umbúðum.
Algengir hlutir, sem fólk hefur með sér og flokkast undir vökva, eru: gos, áfengi, ilmvatn, rakakrem, tannkrem, varagloss, hárlakk, sápur, sjampó svo eitthvað sé nefnt.
Hvað er handfarangur?
Farangur sem farþega er heimilt að bera um borð í flugvélar.
Hvað er innritaður farangur?
Farangur sem er innritaður hjá flugrekenda og fer í lest flugvélar.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar um hvað leyfilegt er að hafa meðferðis í handfarangri og innrituðum farangri má finna á vefsíðu Flugmálastjórnar Íslands http://www.caa.is/, vefsíðu Keflavíkurflugvallar http://www.kefairport.is/, vefsíðu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar http://www.airport.is/ og á vefsíðum flugrekenda.
Einnig má nálgast upplýsingar hjá öryggisvörðum Keflavíkurflugvallar í síma 425-0622.
Hvað verð ég að gera áður en ég mæti til innritunar í brottfararsal flugstöðvar?
Þegar pakkað er niður fyrir ferðalag ætti að hafa í huga að snyrtitöskum, tannkremi, hárvörum, ilmvatnsglösum, kremi, rakspíra, svitalyktareyði, sápum, raksápu og öðrum sambærilegum hlutum er best fyrir komið í innrituðum farangri.
Mundu að pakka einnig hlutum í innritunarfarangur sem ekki eru leyfðir í handfarangri. Hlutir eins og skæri, naglaþjalir og vasahnífar verða að fara í innritaðan farangur. Ef slíkir hlutir finnast í handfarangri við öryggisskoðun er farþeganum undantekningarlaust meinað að halda áfram með hlutinn í gegnum öryggishlið.
Hvernig get ég flýtt fyrir öryggisleit?
- Vertu tilbúin(n) að sýna öryggisvörðum ferðaskjöl/brottfararspjald og/eða skilríki/vegabréf til skoðunar.
- Vertu tilbúin(n) að setja handfarangur í plastbakka við færibandið fyrir framan gegnumlýsingarvél séu þeir fyrir hendi.
- Vertu búin(n) að:
- taka plastpokann með vökvunum úr handfarangri.
- taka fartölvu og önnur stærri rafmagnstæki úr tösku.
- fara úr yfirhöfn, jakka, taka af þér belti og tæma vasa.
Hvað gerist ef bannaðir hlutir finnast í farangri?
Ef bannaðir hlutir (t.d. oddhvassir hlutir, vökvar í stærri umbúðum en 100 ml) finnast við öryggisleit fær farþeginn ekki að fara með þá inn fyrir öryggishlið.
Þegar farþegi er kominn í öryggisleit er of seint að koma bönnuðum hlutum fyrir í áður innrituðum farangri. Aðstaða til að geyma bannaða hluti er ekki fyrir hendi í flugstöðvum á Íslandi.
Leyfileg stærð handtösku
Frá og með 6. maí 2007 takmarkast leyfileg stærð handtösku við 56 cm x 46 cm x 25 cm. Athugið að flugrekandinn, sem þú flýgur með, gæti takmarkað þessa stærð enn frekar telji hann ástæðu til.
Hvernig ferðast ég með vökva sem keyptur er eftir öryggisskoðun og um borð í flugvél?
Farþegar geta eftir sem áður keypt allan vökva og aðrar vörur innan biðsvæðis flugstöðva þar sem vörurnar eru skoðaðar sérstaklega áður en þær fara inn á öryggissvæðið.
Flug frá Íslandi til ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss með tengiflugi.
Vökvi, sem keyptur er í verslun eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun eða um borð í flugvél, skal vera í poka innsigluðum af þeirri verslun þar sem varan var keypt þar til á áfangastað er komið.
Þegar farið er í gegnum öryggisskoðun í því landi, sem tengiflug á sér stað, verður að framvísa kvittun sem staðfestir innihald pokans og kaup þennan dag við öryggishlið sé þess óskað.
Í þeim tilvikum þar sem farþegar ná í innritaðan farangur áður en haldið er áfram í tengiflug, eða farangur hefur ekki verið innritaður alla leið, er vörunum best fyrir komið í farangri sem ætlaður er til innritunar.
Flug frá Íslandi til Norður-Ameríku (Bandaríkjanna/Kanada) með tengiflugi.
Vökva, sem keyptur er í verslun eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun eða um borð í flugvél, verður að setja í innritaðan farangur áður en haldið er áfram í tengiflug.
Tækifæri til þess gefst eftir að farþegar hafa farið í gegnum tollskoðun við komuna í flugstöð í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada).
Flug til Íslands frá Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada) og öðrum ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss.
Vökva, sem keyptur er áður en farþegi innritar sig í flug, skal koma fyrir í innritunarfarangri.
Ekki er heimilt að fara með vökva sem keyptur er í verslunum eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum/Kanada) og öðrum ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss inn í flugstöð á Íslandi jafnvel þótt hann sé í innsigluðum umbúðum.
Heimilt er að fara með vökva sem keyptur er um borð í flugvél skráðri í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss inn í flugstöð á Íslandi ef varan er í innsigluðum poka. Farþegi verður einnig að geta framvísað kvittun sem staðfestir innihald pokans og kaupdagsetningu sé þess óskað af öryggisvörðum.
Athugið að þegar vökvi hefur verið settur í innsiglaða poka af viðkomandi verslun má ekki rjúfa innsiglið á meðan farþegi er staddur í flugstöð eða á ferð í flugvél. Ef farþegi sætir öryggisskoðun áður en komið er út úr flugstöð og innsigli pokans hefur verið rofið er farþega ekki heimilt að fara með vökvann í gegnum öryggiseftirlit.
Við vekjum athygli á reglum sem settar voru 14. apríl 2005:
Óheimilt er að hafa kveikjara og eldspýtur í handfarangri í flugi til og frá Bandaríkjunum. Tæmandi upplýsingar er að finna á vef US Transportation Security, http://www.tsa.gov/public. Hreyfihömluðum farþegum er heimilt að taka hjólastól með sér um borð til viðbótar handfarangri, en hjólastólinn verður að innrita með öðrum farangri.
Farangur sem farþegar hafa með sér inn í flugvélina verður að setja undir sæti fyrir framan eða í farangurshólf fyrir ofan sætin. Farþegi ber alla ábyrgð á handfarangri sínum.
Flugáhöfninni er ekki heimilt að taka við of stórum handfarangri, eins og innrömmuðum myndum, vegna plássleysis og af öryggisástæðum.