Yfirvigt

Farþegar geta ferðast með meiri farangur en farangursheimild  gerir ráð fyrir með því að greiða sérstakt yfirvigtargjald.   

Yfirvigt - Evrópa

  • Á flugum frá Íslandi til Evrópu er greitt 1.400 kr. fyrir hvert umfram kíló.
  • Frá Evrópu til Íslands er verðið €10 sem er umreiknað í gjaldmiðil brottfararstaðar hverju sinni.
  • Þessi verð eiga við um Icelandair flug innan Evrópu og gilda fyrir hvern fluglegg.

Yfirvigt Norður-Ameríka

  • Fyrir flug til og frá Ameríku gilda eftirfarandi verð en þau eiga við um Icelandair flug og gilda fyrir hvern fluglegg.
  • Ef taskan þín vegur 23-32 kg. er innheimt fast yfirvigtargjald fyrir hvern fluglegg.

 

  Ameríka / Kanada
Ísland  7.700 kr. / 55 EUR
Aðrir evrópskir brottfararstaðir  9.100 kr. / 65 EUR

Ef þú ert með aukatösku sem vegur 1-23 kg. er inheimt neðangreint gjald fyrir hvern fluglegg. Ef aukataskan þín er þyngri en 23 kg mun yfirvigtargjaldið hér að ofan einnig vera innheimt.

  Ameríka / Kanada
Ísland  11.500 kr. / 82 EUR
Aðrir evrópskir brottfararstaðir  13.500 kr. / 93 EUR

Ef flogið er með Icelandair og öðru flugfélagi

Þetta á bæði við um flug til Evrópu og Norður-Ameríku
Aðrar farangursreglur gilda ef ferðast er með Icelandair og öðru flugfélagi til áfangastaðar (þ.e. codeshare and interline). Vinsamlegast hafðu samband við sölufulltrúa til þess að fá nánari upplýsingar.

Athugið

Hámarksþyngd tösku er 32 kg. Ef farangurinn þinn er umfram farangursheimild mun Icelandair Cargo e.t.v. henta þér betur. Hafðu samband við Icelandair Cargo til að fá nánari upplýsingar.

Vinsamlegast hafið samband við okkur fyrir nánari upplýsingar.

Þú ert hér: