Íþróttabúnaði er skipt upp í þrjá flokka: lítinn, meðal og stóran. Hægt er að sjá flokkunina og nálgast verðin með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan. Venjulegar yfirvigtarreglur gilda um íþróttabúnað sem ekki er tilgreindur. Vinsamlegast athugið að þessi verð gilda um flug með Icelandair.
| | |
| Golfbúnaður | Brimbretti | Búnaður fyrir stangastökk |
| Skíði og sjóskíði | Flugdreki | Seglbretti |
| Stangveiðibúnaður | | Kajak |
| Skotvopn/ Skotfæri | | |
| Hjól | | |
| Köfunarbúnaður | | |
Ef ferðast er með búnað til seglbrettasiglinga, brimbretti, stangarstökksstangir, hljóðfæri eða hvers kyns aðra hluti sem þarfnast sérmeðferðar skal hafa samband við Icelandair. Alla slíka hluti verður að bóka með fyrirvara og þeir geta ekki flokkast undir farangursheimild farþega. Til að bóka flutning á öðrum farangri sem þarfnast sérmeðferðar eða til að spyrja hvort bóka þurfi annan farangur með fyrirvara skaltu hafa samband við næstu söluskrifstofu Icelandair.
Þar sem ábyrgð flutningsaðila er umtalsvert lægri en heildarverðmæti ofantalinna hluta mælum við eindregið með því að farþegar sem hyggjast flytja með sér slíkan búnað gangi úr skugga um að heimilis- eða ferðatrygging nái yfir verðmæti hvers kyns verðmætra hluta sem fluttir eru sem innritaður farangur.
Vinsamlegast hafið samband við okkur fyrir nánari upplýsingar.