| | Má innrita sem hluti af venjulegri farangursheimild* | Hver flugleggur milli Íslands og Evrópu | Hver flugleggur milli Íslands og Norður-Ameríku | Hver flugleggur milli Evrópu og Norður-Ameríku |
| Golfbúnaður, skíði og sjóskíði, stangveiðibúnaður, skotvopn/skotfæri | Já | 3.900 kr./28 EUR/40 USD | 3.900 kr./28 EUR/40 USD | 5.500 kr./39 EUR/56 USD |
| Hjól, Köfunarbúnaður | Nei | 3.900 kr./28 EUR/40 USD | 3.900 kr./28 EUR/40 USD | 5.500 kr./39 EUR/56 USD |
* Fyrir farseðla útgefna fyrir 1. apríl 2012
Golfbúnað, skíði, stangveiðibúnað og vopn má innrita sem hluta af venjulegri farangursheimild. Ef samanlögð vigt farangurs og þessa íþróttabúnaðar vegur meira en farangursheimildin segir til um er fast gjald innheimt. Annan íþróttabúnað má ekki innrita sem hluti af venjulegri farangursheimild.
* Fyrir farseðla útgefna frá og með 1. apríl 2012
Farangursheimild nær eins og áður yfir golfsett, skíði og stang- og skotveiðibúnað. Viðskiptavinir geta því innritað eitt sett af þess konar íþróttabúnaði í staðinn fyrir venjulega ferðatösku. Annan íþróttabúnað er ekki hægt að innrita án endurgjalds.
Hver farþegi má hafa með sér eitt golfsett sem hluta af venjulegum farangri. Hámarksþyngd golfbúnaðar er 25 kg.
Skíði
Snjó- og skíðabúnað má innrita sem hluta af venjulegri farangursheimild. Skíðabúnaður felur í sér annað hvort af eftirfarandi:
- Eitt skíðapar, eitt par af skíðaskóm og eitt par af skíðastöfum, eða:
- Eitt snjóbretti og eitt par af skóm
Eitt snjó- eða skíðasett er leyfilegt á hvern farþega en ef farið er yfir þau mörk verður venjulegt yfirvigtargjald innheimt.
Hjól
Hjól er ekki hægt að innrita sem hluta af venjulegri farangursheimild. Hægt er að innrita reiðhjól sem farangur ef:
- Reiðhjólið er í tösku eða kassa
- Stýrið snýr þannig að það sé samhliða stellinu
- Fótstig hafa verið fjarlægð
- Hámarksstærð í sentimetrum: 221 lengd x 56 breidd x 102 hæð (í tommum: 87 lengd x 22 breidd x 40 hæð)
- Ef þú ferðast með fleiri en eitt hjól telst eitt hjól sem lítill íþróttabúnaður og önnur hjól teljast sem meðal íþróttabúnaður.
Skotvopn og skotfæri
Heimilt er að hafa skotvopn og skotfæri meðferðis í innrituðum farangri sé eftirtöldum skilyrðum fullnægt:
- Skotvopn og skotfæri verður að afhenda til eftirlits hjá öryggisvörslu
- Skotvopn verður að taka í sundur
- Magn skotfæra er takmarkað við 5 kg á hvern farþega og búa skal um skotfæri í öryggisboxi úr tré/málmi/trefjaplötu þar sem þau eru varin gegn höggi og ekki er hætta á að þau hreyfist til
- Skotvopn og skotfæri eru einungis flutt sem innritaður farangur
- Farþegi ábyrgist að hann hafi löggilt skotveiðileyfi