API og APIS
KRÖFUR FYRIR FLUG TIL OG FRÁ BANDARÍKJUNUM, BRETLANDI OG KANADA
Þrjú lönd innan áætlanakerfis Icelandair krefjast ákveðinna farþegaupplýsinga fyrir allar brottfarir til og frá landinu. Þau eru Bandaríkin, Kanada og Bretland. Þessar upplýsingar eru kallaðar á ensku ýmist Advance Passenger Information (API) eða Travel Document Information (TDI). Þetta eru þær upplýsingar um farþega sem koma fram á upplýsingasíðu vegabréfsins. API upplýsingum er safnað saman aldrei seinna en við innritun fyrir flug til Kanada og Bretlands en meiri fyrirvara þarf á sumar API upplýsingar þegar ferðast er til Bandaríkjanna. APIS (Advance Passenger Information System) eru API upplýsingar sem bandarísk stjörnvöld krefjast af öllum sem heimsækja Bandaríkin. Öllum flugfélögum, þar á meðal Icelandair, er skylt að senda API/APIS upplýsingar til viðkomandi stjórnvalda fyrir brottför.
ATHUGIÐ: Icelandair biður farþega á leið til eða frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada um að fylla API/APIS upplýsingar með því að nota rafræna formið hér neðst á síðunni, hafi það ekki verið gert við bókun (sjá leiðbeiningar hér að neðan).
APIS (Advance Passenger Information System) eru upplýsingar sem bandarísk stjörnvöld krefjast af öllum sem heimsækja Bandaríkin. Öllum flugfélögum, þar á meðal Icelandair, er skylt að senda þessar upplýsingar til bandarískra stjórnvalda fyrir brottför. Þetta þýðir að farþegar Icelandair sem eru á leið til Bandaríkjanna þurfa að fylla út þessar upplýsingar áður en haldið er af stað. Þetta er sérstaklega mikilvægt til að forðast óþægindi og seinkanir í Keflavík. Æskilegast er að þessar upplýsingar séu fylltar rétt út við bókun, eða áður en haldið er af stað út á flugvöll. Það getur flýtt fyrir innritun.
Þær upplýsingar sem gefa þarf upp eru:
Þær API/APIS upplýsingar sem gefa þarf upp eru:
Vegabréfsupplýsingar (fyrir Bandaríkin, Bretland og Kanada)
Secure Flight
Samgönguöryggisstofnun Bandaríkjanna (Transportation Security Administration - TSA) rekur kerfi sem kallast á ensku "Secure Flight program" og miðar að bættu skimunarferli á farþegaupplýsingum gagnvart eftirlits-listum bandarískra löggæslustofnana. Nánari upplýsingar má finna á slóð: http://www.tsa.gov/what_we_do/layers/secureflight/
Sá hluti APIS-upplýsinga sem þarf að koma fram við bókun eru fullt nafn eins og það birtist á ferðaskilríki, fæðingardags. og ár, kyn og hið svo-kallaða 'Redress'-númer ef það er til staðar (sjá hér að ofan).
Vinsamlegast sjá tilkynningu á ensku frá TSA um meðferð persónuupplýsinga.
Hvernig er hægt að gefa upp þessar upplýsingar:
Með því að slá inn eftirnafn og bókunarnúmerið í formið hér fyrir neðan er hægt að fara inn í bókunina og bæta þessum upplýsingum beint þar inn.
Athugið að bókunarnúmerið er sex stafa númer (tölu - og bókstafir). Það gæti til dæmis litið út svona 3TDEYW. Bókunarnúmerið stendur efst á Emiðanum sem sendur er í tölvupósti til farþega. Þeir farþegar sem bóka pakkaferð á vef Icelandair fá sent í tölvupósti staðfestingu á bókun og Emiða, nota á bókunarnúmer úr Emiða en ekki úr staðfestingu.