Hvað er rafrænn farseðill?
Þegar flug er bókað á vefnum eða hjá söluaðila Icelandair er farseðillinn ekki lengur prentaður út á pappír. Þess í stað er hann geymdur í bókunarkerfi Icelandair sem rafrænn farseðill eða E-miði. Þú færð senda kvittun með ferðaáætlun í tölvupósti sem er staðfesting á pöntun þinni. Þú prentar síðan kvittunina út og hefur hana með þér á flugvöllinn ásamt vegabréfi þínu.
Hverjir eru kostir rafrænna farseðla?
Ekki er hægt að gleyma, týna eða stela E-miða þar sem rafræni farseðillinn er vistaður í bókunarkerfi Icelandair.
Hvernig er innritað með E-miða?
Ef farið er frá Keflavík, Kaupmannahöfn, Osló eða Stokkhólmi geta farþegar innritað sig sjálfir með því að nota sjálfsafgreiðslustöð (kiosk).
Við innritun á Heathrow í London (LHR) og í Amsterdam (AMS) skal hafa meðferðis:
- Staðfestingu á E-miða sem send var í tölvupósti (fyrir alla farþega sem ferðast til Íslands og Bandaríkjanna).
- Gilt vegabréf.
Athugið: Alltaf verður að sýna útprentaða staðfestingu á ferðaáætlun þegar ferðast er til Bandaríkjanna. Við mælum með því að hafa alltaf útprentaða kvittun fyrir E-miðanum með sér á ferðalögum til Íslands eða Bandaríkjanna.
Áfangastaðir Icelandair sem bjóða upp á E-miða
Eftirfarandi áfangastaðir Icelandair bjóða upp á E-miða:
| Evrópa | Norður Ameríka |
| Reykjavík (KEF) | Boston |
| Amsterdam | Halifax |
| Barcelona | Minneapolis (MSP) |
| Berlín (SXF) | New York (JFK) |
| Frankfurt (FRA) | Orlando (SFB) |
| Kaupmannahöfn | Seattle (SEA) |
| Glasgow | Toronto |
| Helsinki | Washington DC (IAD) |
| London (LHR) | |
| Madrid | |
| Mílanó | |
| München | |
| Osló | |
| París (CDG) | |
| Zürich | |
Athugið að þrátt fyrir þetta er nauðsynlegt að hafa gilt vegabréf meðferðis í millilandaferðum.