ATHUGIÐ: Farþegar frá löndum undanþegnum vegabréfsáritunum til Bandaríkjanna ('Visa-Waiver Program')geta átt von á því að þeim verði hafnað fari, hafi þeir hvorki ESTA heimild né vegabréfsáritun, skv. tilskipun bandarískra yfirvalda. Brot á þeirri tilskipun varðar sektir og önnur viðurlög.
Ferðamenn--frá löndum sem eru undanþegin vegabréfsáritun til Bandaríkjanna ("Visa Waiver Program" - VWP)--verða að sækja um rafræna ferðaheimild á vef bandarískra innflytjendayfirvalda; sjá: Electronic System for Travel Authorization (ESTA) þar sem sótt er um ESTA.
Öllum viðkomandi farþegum er gert skylt að sækja um ESTA heimild á rafrænu formi.
Það er á ábyrgð farþegans að sækja um ESTA skráningu fyrir brottför til Bandaríkjanna.
Æskilegt er að sótt sé um ferðaheimildina á vefnum minnst 72 tímum fyrir brottför. Reynt verður að afgreiða umsóknir sem berast með minni fyrirvara, en ekki verður hægt að tryggja afgreiðslu nema með fyrrgreindum fyrirvara. Flestum umsóknum er svarað um hæl, innan fárra mínútna. Ferðamenn ættu að hafa með sér prentað eintak af ESTA-heimildinni.
Þegar leyfið er veitt gildir það í tvö ár, en þá þarf einvörðungu að uppfæra ferðaupplýsingar fyrir hverja tiltekna ferð, þ.e:
Frekari upplýsingar er að finna á vef bandaríska sendiráðsins eða á vef US Department of Homeland Security og hér er hægt að skrá ESTA upplýsingar.