Icelandair býður nú viðskiptavinum sínum að innrita sig með farsímanum sínum. Með farsímainnritun getur þú innritað þig óháð stað og stund (22 klst fyrir brottför) og valið sæti um borð í flugvélinni. Brottfararspjaldið er síðan prentað út á sjálfsafgreiðslustöðvum á flugvelli og þar með sparar þú tíma og sleppur við biðraðir við hefðbundna innritun.
Eftirfarandi þjónusta er boði:
Þeir farþegar sem ferðast með farangur þurfa að skrá hann inn í sjálfsafgreiðslustöð á flugvelli og fá töskumiða fyrir hverja tösku (bag-tag). Þegar farþegi hefur innritað sig sjálfur í flug tekur starfsmaður viðkomandi flugfélags við farangri hans á sérstakri hraðleið (Fast Bag Drop-off). Þeir sem engan farangur hafa halda beint út á brottfararsvæðið.