Allir farþegar verða að sýna opinber skilríki við brottfarahlið, þ.e. vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini frá heimalandi eða því landi sem þeir búa í.
Sækja pakkabókun
Smelltu hér til að sækja pakkabókun.
Ferðast til Evrópu
Bandarískir og kanadískir ríkisborgarar með gild bandarísk eða kanadísk vegabréf þurfa ekki vegabréfsáritun vegna tengiflugs, almennra ferða eða viðskiptaferða til Evrópu (vegna dvalar í allt að 90 daga). Vegabréf ferðamanna má ekki falla úr gildi innan áætlaðs ferðatíma. Ferðamönnum sem ekki eru bandarískir, kanadískir eða evrópskir ríkisborgarar og ferðast frá Bandaríkjunum er ráðlagt að hafa samband við sendiráð þess lands sem ferðast er til, áður en haldið er frá Bandaríkjunum, til að fá upplýsingar um vegabréfsáritanir. Hér er skrá yfir sendiráð og vefsíður þeirra í Bandaríkjunum.
Athugið:
Icelandair hefur rétt á að neita þeim farþegum um flutning sem hafa ekki tilskilin skjöl undir höndum. Undanþágur frá takmörkunum farmiða gilda ekki ef farþegi hefur ekki rétta áritun í vegabréfi sínu við brottför.
Ferðast til Bandaríkjanna
Evrópskir ferðamenn sem ferðast til Bandaríkjanna í almennum ferðum eða viðskiptaferðum og hyggjast dvelja í 90 daga eða skemur þurfa ekki vegabréfsáritun. Undanþágur frá vegabréfsáritun (Visa Waiver Program) fela ekki í sér heimild til þess að starfa eða stunda nám á meðan dvalið er í Bandaríkjunum og ferðamönnum er ekki heimilt að dvelja lengur en í 90 daga nema þeir breyti dvalarstöðu sinni. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.
APIS (Advanced Passenger Information System)
APIS eru upplýsingar sem útlendingaeftirlitið í Bandaríkjunum krefjast af öllum sem heimsækja Bandaríkin. Flutningsaðilum, þar á meðal Icelandair, er skylt að senda þessar upplýsingar til stjórnvalda í Bandaríkjunum fyrir brottför. Þetta tók gildi hinn 9. maí síðast liðinn.
Þetta þýðir að farþegar Icelandair sem eru á leið til Bandaríkjanna þurfa að fylla út þessar upplýsingar áður en haldið er af stað. Þetta er sérstaklega mikilvægt til að forðast óþægindi og seinkanir í Keflavík. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.
Áritun til landa innan Schengen
Með tilkomu staðlaðrar vegabréfsáritunar á Schengen-svæðinu hafa ferðalög um Evrópu verið einfölduð til muna. Ferðamenn sem ferðast um Schengen-svæðið njóta góðs af þessu heildstæða kerfi. Með staðlaðri vegabréfsáritun geta ferðamenn komið til eins lands og ferðast hindranalaust um allt Schengen-svæðið. Eftirlit á innri landamærum er horfið og það er minni þörf á vegabréfaskoðun. Þetta hefur í för með sér að litið er á öll ferðalög innan svæðisins, hvort sem er í lofti, á vegum eða í lestum, sem ferðir innanlands, eins og þegar ferðast er frá einu ríki í Bandaríkjunum til annars. Schengen-löndin 15 eru: Austurríki, Belgía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Ísland, Ítalía, Lúxemborg, Noregur, Portúgal, Spánn, Svíþjóð og Þýskaland. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um Schengen.
Reglur um komu til Bandaríkjanna
Athugið að reglum um ferðalög til Bandaríkjanna hefur verið breytt. Ef þú ert ekki bandarískur ríkisborgari er mælt með því að þú skoðir eftirfarandi upplýsingar, áður en haldið er af stað:
Ferðast til Íslands
Bandarískir, breskir og írskir ríkisborgarar sem koma frá sömu löndum, þurfa að framvísa gildu vegabréfi við komuna til Íslands.
Evrópskir ríkisborgarar sem koma frá Austurríki, Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi, Ítalíu, Liechtenstein, Lúxemborg, Noregi, Portúgal, Spáni, Svíþjóð, Sviss og Þýskalandi þurfa einungis að sýna gild skilríki sem gefin eru út af viðeigandi yfirvöldum í heimalandinu.
Ferðamenn frá öðrum löndum en þeim sem nefnd voru að ofan ættu að skoða vefsíðu næsta sendiráðs Íslands þar sem finna má upplýsingar um vegabréf og áritanir á ferðalögum.