Dagskrá
Á flugferðum okkar bjóðum við upp á:
- kvikmyndir og/eða styttri skemmtiþætti
- fjölda tónlistarrása í steríó
- Icelandair Info - Sagashop tímaritið
- úrval dagblaða og tímarita
Heyrnatól ef þú gleymdir þínum fást um borð fyrir 450 kr.
Ný sæti og nýtt afþreyingarkerfi
150 klukkustundir af afþreyingu og nóg pláss fyrir fæturna
Þegar þú kemur um borð í vélar Icelandair bíða þín þægindi og afþreying. Rými milli glæsilegra og þægilegra leðurklæddra sæta er að lágmarki 81 sentimetri.
Í afþreyingarkerfinu geturðu horft á 150 klukkustundir af afþreyingu í formi nýrra og klassískra kvikmynda, sjónvarpsþátta og heimildarmynda og að auki geturðu hlustað á innlenda og erlenda tónlist sem DJ Margeir hefur hjálpað okkur að velja. Þú ræður hvað þú horfir á því hver og einn hefur snertiskjá fyrir framan sig.
Vinsamlegast athugið að í algjörum undantekningartilfellum getur það komið fyrir að farþegar Icelandair fljúgi með vél þar sem sæti og afþreyingarkerfi eru ekki eins og í auglýsingum.