Tónlist um borð

DJ Margeir hefur tekið að sér að velja tónlistina um borð í afþreyingarkerfi Icelandair.

Til að byrja með valdi hann 40 plötur og bjó til sjö óvenjulega og einstæða lagalista með íslenskri og alþjóðlegri músík en tónlistin hefur síðan verið uppfærð reglulega. Margeir velur þá tónlist sem honum finnst „mest spennandi“, með sérstaka áherslu á íslenska tónlist og þá listamenn sem hafa tekið þátt í Músíktilraunum og Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni.

Þessi umbylting á tónlistarvali um borð er liður í því að láta farþegum Icelandair líða eins vel og kostur er í fluginu og gefa þeim tækifæri til að kynnast örlitlu af Íslandi, jafnvel þó að þeir sjái aldrei neitt af því nema flugstöðina í Keflavík. Farþegar geta á einfaldan hátt valið hvaða lagalista sem er og hlustað á fína blöndu af lögum eða þeir velja sjálfir einstök lög eða albúm af snertiskjánum. Lagalistunum er breytt á þriggja mánaða fresti.

Margeir hélt nýlega upp á að vera búinn að blanda saman tónlist á bestu dansstöðunum í Reykjavík og annars staðar í Evrópu í tuttugu ár. DJ Margeir er í hópi þeirra íslensku plötusnúða sem hafa lengstan feril að baki og njóta mestra vinsælda.

Þú ert hér: