Þjónusta á Saga Class

Njóttu þæginda og fljúgðu á Saga Class með Icelandair. Upplifunin hefst þegar þú bókar flug á Saga Class á vefsíðu okkar, hjá söluskrifstofum okkar eða hjá ferðaskrifstofu.

Sætispantanir:
Hægt er að taka frá sæti á Saga Class frá því að bókun fer fram þar til sólarhring fyrir brottför. Icelandair áskilur sér þann rétt að veita þeim er hæstu fargjöld greiða forgang að tilteknum sætaröðum á Saga Class.

Sérmerkt innritunarborð:
Sérmerkt innritunarborð eru fyrir farþega á Saga Class þar sem veitt er víðtæk þjónusta og tryggt að ekki þurfi að bíða í löngum biðröðum.

Aukin farangursheimild:
Farþegar á Saga Class geta innritað meiri farangur en farþegar á almennu farrými.

Fljótleg öryggisskoðun (í tilteknum flugstöðvum):
Í sumum flugstöðva okkar stendur farþegum á Saga Class til boða að fara beint í sérstaka öryggisskoðun fyrir farþega á fyrsta farrými að innritun lokinni. Ekki þarf að standa lengi í biðröð og er því hægt að fara beint út að hliði eða í eina af setustofunum sem í boði eru.

Aðgangur að betri stofum:
Þegar flogið er frá Íslandi er tilvalið að slaka á í nýrri Saga Class setustofu Icelandair þar sem hægt er að tylla sér í þægilegan sófa, horfa á fréttir, fara á internetið eða fá sér hressingu.

Í öllum flugstöðvum okkar í Bandaríkjunum og Evrópu hafa farþegar á Saga Class aðgang að sérstökum setustofum.

Forgangur við að fara um borð og frá borði:
Farþegar á Saga Class eiga þess kost að fara fyrstir um borð í vélina eða fram fyrir aðra farþega á meðan verið er að hleypa um borð. Eftir lendingu eru farþegar á Saga Class þeir fyrstu sem fara frá borði.

Sæti um borð:
Þegar komið er inn í vélina tekur starfsfólk okkar vel á móti þér. Flugvélafloti Icelandair samanstendur af rúmgóðum Boeing 757 vélum sem búnar eru breiðum sætum með fóthvílum. Sætaskipanin er 2+2 sem tryggir að farþegar á Saga Class njóta bestu þæginda og koma hvíldir og endurnærðir á áfangastað.



Flug

Tegund ferðar:
Leita eftir:

Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland