Öll gæludýr sem flutt eru í flugvélum Icelandair eru höfð á sérstökum loftræstum flutningssvæðum í farangursrými vélarinnar*. Heimilt er að flytja að hámarki fjögur dýr í hverri vél, en tvö dýr geta þó deilt búri ef þau eru smávaxin og af sömu tegund. Farþeginn verður sjálfur að útvega búr fyrir gæludýrin. Gjald fyrir flutning á gæludýrum er það sama og fyrir yfirvigtarfarangur á tiltekinn áfangastað.
Flutning á gæludýrum þarf að panta sérstaklega þegar ferð er bókuð.
Hafa skal samband við næstu söluskrifstofu til að bóka flutning á gæludýrum. Gefa þarf upp nákvæm mál og þyngd gæludýrabúrsins, að meðtalinni þyngd gæludýrsins. Þyngd gæludýrs og búrs má að hámarki vera 32 kg samanlagt og stærðin 92x56x71 cm. Ef ferðast er með þyngri gæludýr þá hafið vinsamlegast samband við Icelandair Cargo.
Athugið: Í mörgum löndum er þess krafist að gæludýr séu sett í sóttkví áður en þau fá að koma inn í landið. Það er alfarið á ábyrgð farþega að komast að því hvaða kröfur eru gerðar í landi sem ferðast er til. Hafið samband við sendiráð viðkomandi lands áður en ferð er bókuð til að ganga úr skugga um að flytja megi gæludýrið þangað.
*Sérþjálfaða fylgdar-, björgunar- og leitarhunda má hafa í farþegarými en þá verður einnig að bóka með fyrirvara.