Til að nota gjafabréf upp í greiðslu á flugferð (eingöngu flug):
Haka þarf í reit á bókunarvélinni á forsíðu www.icelandair.is sem er merktur "Nota gjafabréf" (reitur fyrir ofan "Leita" hnappinn). Á næstu síðu er Veflykillinn færður inn og smellt á "Bæta við". Athugið að smella þarf á "Bæta við" á eftir innslætti hvers veflykils.
Eftir að þú hefur fært inn eitt eða fleiri gjafabréf (veflykla) mun sú heildarupphæð sem þar er sýnd koma til frádráttar því fargjaldi sem þú bókar þegar miðinn er gefin út.
Beðið verður um greiðslukortaupplýsingar í ferlinu sem öryggisráðstöfun þrátt fyrir að öll ferðin sé greidd með gjafabréfum. Eftir að bókun lýkur muntu fá sendan E-miða og kvittun í tölvupósti.
Athugið að ekki er hægt að nýta gjafabréfið eftir að bókun er gerð, heldur er það notað um leið og bókunin er framkvæmd. Ef bókað er hjá sölumanni gilda reglur Icelandair um þjónustugjöld.
Til að nota gjafabréf sem greiðslu upp í pakka- eða sérferð (flug og önnur þjónusta)
Ferðin er bókuð og á lokasíðunni (Greiðsla) er hægt að velja að greiða ferðina með gjafabréfi. Þá er smellt á "Velja" efst á síðunni og gluggi opnast með reit fyrir veflykilinn. Ef nota á fleiri en einn veflykil þá er smellt á "Bæta gjafabréfi við". Gjafabréfið kemur til frádráttar þegar ferðaskjölin eru gefin út.
Vildarklúbbur Icelandair
Vinsamlega athugið að ef greiða skal með gjafabréfi Vildarklúbbs, er einungis hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð. Allar nánari upplýsingar um skilmála um gjafabréf Vildarklúbbsins má finna hér.