Stokkhólmur er óvenju hlýleg og falleg borg og það á ekki síst við á sumrin þegar heit sólin glampar á bláum himni og lætur geisla sína dansa á víkum, vogum og vötnum. Borgarstæðið er frábært og íbúarnir hafa bætt um betur með stórkostlegum byggingum, nýjum og gömlum, sem rík ástæða er til að skoða. Hið sama gildir um söfnin í Stokkhólmi. Þau eru hvert þeirra heimsóknar virði. Þó verður að mæla sérstaklega með söfnunum í Djurgården, Wasasafninu, þar sem sjá má elsta nafngreinda herskip í heimi, Skansinum, Árbæjarsafni Svía með húsdýragarði í kaupbæti, og Nordiska Museet.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.
Nánari upplýsingar um Stokkhólm er að finna hér. Fyrir pakkabókun til Stokkhólms fást á bilinu 3.000 til 4.800 Vildarpunktar.
Smelltu hér til að fá upplýsingar um spennandi dagsferðir um borgina og nágrenni með íslenskum fararstjóra og ferðir til og frá flugvelli í Stokkhólmi.
Verð á mann í tvíbýli í 3 nætur frá kr. 68.900.-* Verð á mann í einbýli í 3 nætur frá kr. 94.100.-* Verð á mann í þríbýli í 3 nætur frá kr. 66.100.-*
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Takmarkað sætaframboð.
Ferðalýsing
Hótel í boði: Park Inn Solna *** í úthverfi borgarinnar, tekur um 10 mín. með lest frá hótelinu að fara í miðborg Stokkhólms Scandic Victoria Tower **** í um 15 mín. akstursfjarlægð frá miðborg Stokkhólms
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.