Skýjakljúfarnir á Manhattan eru ekki aðeins tákn New York, tákn nútímans og tákn fyrir mesta viðskiptaveldi mannkynssögunnar. Skýjakljúfarnir eru einnig táknmynd þess kröftuga mannlífs og menningar, gróskunnar og litríkisins sem hvarvetna blasir við augum í New York. Upplifun ferðamanns, sem kemur til New York í fyrsta skipti, verður ekki lýst með orðum. Jafnvel þó menn geri ekki annað en að skoða mannlíf og merkisstaði á Manhattan eru hughrifin svo sterk, hlaðin andstæðum og fjölbreytileika, að nokkrir dagar verða upplifun sem fylgir manni til æviloka.
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair.
Athugið að ekki er hægt að bóka hótel í Bandaríkjunum nema fólk hafi náð 21 árs aldri.
Nánari upplýsingar um New York er að finna hér. Fyrir pakkabókun til New York fást á bilinu 4.200 til 6.720 Vildarpunktar
Smelltu hér fyrir upplýsingar um skoðunarferðir um tökustaði frægra sjónvarpsþátta og kvikmynda í New York.
Verð á mann í tvíbýli í 2 nætur frá kr. 84.900.-* Verð á mann í einbýli í 2 nætur frá kr. 104.900.-* Verð á mann í þríbýli í 2 nætur frá kr. 79.900.-* Verð á mann í fjórbýli í 2 nætur frá kr. 76.900.-* Athugið að einungis eru 2 rúm í 3ja og 4ra manna herbergjunum.
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.