Í Bradenton er stórkostlegt að njóta sólar og hressingar á baðströndum sem margir telja hinar bestu á Florida. Hér geta ferðamenn leikið golf á 19 frábærum golfvöllum. Í menningar- og sólskinsbænum Sarasota, um 20. mín. akstur suður frá Bradenton, er ótal margt að sjá og skoða þegar fólk vill hvíla sig á sólböðum og busli í flæðarmálinu. Bradenton og Sarasota eru samtals um 40 verslanamiðstöðvar og því er þetta svæði einnig kjörið til verslunar.
Flogið er til Orlando og er Bradenton í um það bil 3ja klst. akstursfjarlægð frá Orlando.
Athugið að ekki er hægt að bóka hótel í Bandaríkjunum nema fólk hafi náð 21 árs aldri.
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í pakkaferð til allra áfangastaða Icelandair.
Fyrir pakkabókun til Florida fást á bilinu 4.800 til 7.680 Vildarpunktar.
Gildir frá 1. janúar - 18. maí 2012 og aftur frá 14. september 2012 til maí 2013.
Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur frá kr. 85.900.-* Verð á mann í einbýli í 4 nætur frá kr. 97.900.-* Verð á mann í þríbýli í 4 nætur frá kr. 81.900.-* Verð á mann í fjórbýli í 4 nætur frá kr. 79.900.-*
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.