Icelandair er fyrsta flugfélag í heimi sem stofnar sérstakan klúbb, Icelandair Golfers, fyrir kylfinga í þeim tilgangi að auðvelda þeim að leggja stund á íþrótt sína á völlum erlendis.
Félagar í klúbbnum greiða hóflegt ársgjald sem auðveldar golf ferðina. Það er sannfæring okkar að það margborgar sig fyrir kylfinga, sem ætla að leika golf erlendis, að gerast félagar í klúbbnum.
Árgjald í Icelandair Golfers er kr. 5.900,-. Ekkert gjald fyrir golfsett í áætlunarflugi Icelandair, en golfsettið má þó ekki vega meira en 25 kíló. Farangursheimild þessi gildir eingöngu í áætlunarflugi Icelandair í beinu flugi milli áfangastaða þess, og gildir eingöngu fyrir golfsett, ekki annarskonar farangur. Ekkert takmark er á fjölda ferða innan gildistíma kortsins. Icelandair Golfers er eign Icelandair. Ef frekari spurningar vakna, sendið tölvupóst á golfers@icelandair.is
Hvað er innifalið?
Ekkert gjald fyrir golfsett í áætlunarflugi Icelandair
2500 vildarpunktar
100 boltar í Básum
Icelandair Golfers meðlimakort
Merkikort fyrir golfpokann
Óvænt gjöf
Kortið gildir í ár
Upplýsingar um golfsett sem farangur má finna hér.