Toronto er miðstöð ensk-kanadískrar menningar og fjölmiðlunar en um leið er hún heimaborg ótal þjóðarbrota sem setja sterkan svip á mannlífið og einstök hverfi. Það er hægt að fá sér morgunverð í Ísrael, hádegisverð í Kína, síðdegiskaffi á Ítalíu og kvöldverð í Grikklandi án þess að fara nokkurn tíma út fyrir borgarmörk Toronto. Borgin er einnig þekkt fyrir ýmiss konar hátíðir sem þar eru haldnar frá því í maí fram í október. Ýmis áhugaverð söfn eru í Toronto og borgin státar einnig af frábærum verslunum og fyrsta flokks veitingastöðum þar sem má kynnast hinu besta í matargerðarlist frá öllum heimshornum.
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair.
Verð á mann í tvíbýli í 2 nætur frá kr. 80.900.-* Verð á mann í einbýli í 2 nætur frá kr. 98.900.-* Verð á mann í þríbýli í 2 nætur frá kr. 77.900.-* Verð á mann í fjórbýli í 2 nætur frá kr. 75.900.-* Athugið að einungis eru 2 rúm í þriggja og fjögurra manna herbergjunum.
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.