Helsinki hefur á sér bæði norrænt og rússneskt yfirbragð þegar horft er til byggingarlistar. Í borginni má sjá margar stórkostlegar byggingar, sumar eins og fluttar beint inn frá gamla rússneska keisaradæminu og aðrar sem gætu þess vegna verið í Stokkhólmi. Annars er Helsinki eins og hver önnur norræn stórborg og iðar af mannlífi, ekki síst á sumrin þegar heitt er í veðri og hægt að sitja alls staðar utandyra á kaffihúsum og veitingastöðum. Enginn ætti heldur láta sólríkan góðviðrisdag líða án þess að fara niður á höfn og bregða sér á markaðinn.
Verð á mann í tvíbýli í 3 nætur frá kr. 65.900.-* Verð á mann í einbýli í 3 nætur frá kr. 86.700.-* Verð á mann í þríbýli í 3 nætur frá kr. 63.500.-* *Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.