Fort Lauderdale er hreinn og tær unaður á suðausturströnd Florida þar sem dimmbláar öldur Atlantshafs gæla við snjakahvíta sandfjöru, iðandi af mannlífi og gullnum tækifærum. Fort Lauderdale er "hjarta gullstrandarinnar" þar sem bestu kostir sólarstranda við Miðjarðarhaf fléttast saman við það sem gerir Bandaríkin svo heilland. Um bæinn og nágrannabyggðirnar liggur 483 km langt kerfi af síkjum og er svæðið oft nefnt "Feneyjar Bandaríkjanna". Las Olas Boulevard er skemmtileg strandgata þar sem er að finna ótal góða veitingastaði og verslanir ýmiskonar.
Flogið er til Orlando og er Fort Lauderdale í um það bil 4 klst. akstursfjarlægð frá Orlando.
Gildir frá 1. janúar - 18. maí 2012 og aftur frá 14. september 2012 til maí 2013.
Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur frá kr. 95.900-* Verð á mann í einbýli í 4 nætur frá kr. 118.900.-* Verð á mann í þríbýli í 4 nætur frá kr. 88.900.-* Verð á mann í fjórbýli í 4 nætur frá kr. 84.900.-* Athugið að einungis eru 2 rúm í 3ja og 4ra manna herbergjum
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn punktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.